Sjómannadagsblaðið

Volume

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1992, Page 41

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1992, Page 41
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 39 um og gæta bátsins við skipshliðina en ráð hafði verið fyrir gert og fór Guðmundur einn Bolvíkinganna upp í skipið til að rétta niður vörurn- ar. Vörurnar voru 20 kolapokar, nokkrir 200 punda sekkir af mélvöru og tvö olíuföt, á fimmta hundrað pund hvort. Þetta tíndi Guðmundur allt rösk- lega yfir lunninguna á skipinu og rétti mönnunum í bringingabátnum. Hann tók síðast olíufötin. Hann greip þau hvort um sig í fangið, bar þau að lunningunni, lagði þau á hana og stöðvaði þau, greip síðan í lagg- irnar og lét þau síga niður með skips- síðunni. Guðmundi Júní kynntist ég lítið, leiðir okkar lágu ekkert saman, og ég var svo ungur þegar hann var ofar foldu og að vinna sér margt til frægð- ar. Ég rétt hitti hann við jarðarförina hans afa, og þá bað hann okkur Geira að muna eftir sér, ef við ættum stráka. Geiri átti aðeins einn, rétt fyrir föðurnafnið sitt, en ég átti tvo og gat skírt annan Guðmund Júní. Hann varð ekki gamall rétt sjötugur hann Guðmundur Júní. Það var víst krabbi sem drap hann. Ég byrjaði mína sjómennsku á Flateyri með föður mínum 1944—45 og var sjómaður á bátum frá Flateyri þar til ég fór á togarann Gylli, sem þá hafði verið keyptur til Flateyrar og var ég þar í tvö ár, fyrst sem háseti, síðan bátsmaður og stýrimaður. Við fiskuðum ágætlega. Fyrra árið fisk- uðum við 3600 tonn og þó voru mikil frátök, við þurftum á tveggja mán- aða fresti til Reykjavíkur í ketils- hreinsun, og svo var stoppað um há- tíðir. Mér féll ekki togarasjómennskan, ég var uppalinn á bátum, og það var margt, sem mér féll ekki í togarasjó- mennskunni, til dæmis það háttalag, að væri farið inná Önundarfjörð und- an veðri, þá var aldrei lagzt við bryggju og skipshöfninni þá gert kleyft að fara í land. í skipshöfninni var margt Flateyringa. Svona tiktúr- ur ýmsar féllu mér ekki. Ég náði ekki að vera sjómaður á stríðsárunum, en bjó þó við hreint ekki litla stríðshættu. Bretarnir her- tóku húsið okkar, neðri hæðina og fylltu kjallarann af skotfærum og handsprengjum, og það mátti segja að mín fjölskylda svæfi á sprengjum öll stríðsárin. Faðir minn var góður aflamaður. Ég held að hann hafi verið jafnbezti aflamaðurinn á Flateyri. Þegar ég var stráklingur átti maður náttúrlega að hátta snemma eins og þá var siður að krakkar væru látnir gera, en ég átti það til að stinga af, þegar bátar komu seint úr róðri, og stelast niður á bryggju til að fylgjast með vigtinni og beið spenntur eftir því, hvort pabbi væri ekki hæstur. Hann var það oft karlinn. Svo var það 1958, að ég fór til Súg- andafjarðar og tók þar við skipstjórn á Freyju II. Gamla fræga Éreyjan hans Sigga Hallbjörnssonar og Gísla Guðmundssonar var þá orðin ónýt og Marzilíus hafði smíðað nýja Freyju. Ég var með fleiri báta þarna í Súgandafirði, en fluttist þaðan til Isafjarðar og var með báta fyrir Norðurtangann h.f., Guðnýju og Víkinginn. Svo keyptum við Baldur Jónsson framkvæmdastjóri Norðurtangans bátinn Gunnhildi og fórum með þann bát suður og tókum að gera hann út frá Hafnarfirði. Manni fannst langt að róa frá Hafnarfirði og ég reri oft frá Grindavík eða Sand- gerði. Ég kunni ágætlega við að róa frá Grindavík. Innsiglingin þar er náttúrlega varasöm, en allt í lagi með hana, ef farið er rétt í hana og sætt lagi í brimi. Þetta er bara eitt brot, sem um er að ræða að sleppa við. Mér líkaði ver við innsiglinguna í Sandgerði, hún er svo miklu lengri og þar getur verið um fleiri brotsjóa að ræða í siglingunni inní höfnina. Það er ágætt að róa frá Grindavík, stutt að róa, og fiskur gekk oft grunnt. Ég minnist þess að einu sinni höfðum við róið alla vikuna og verið með 110-15 tonna afla í róðri. Svo var það á laugardeginum að ég segi við strákana, að nú ætli ég að fara í sport- róður og lofa þeim að koma snemma að landi úr róðrinum og lengja fyrir þeim helgina. Ég bjóst ekki við miklu þegar ég lagði í bug rétt utan við nesið og fór á milli og byrjaði að draga. Þarna var þá nægur fiskur og við fengum 14 tonn. Ég var aldrei með net, reri alltaf með lóðir og dragnót og stundaði einnig humar- og síldveiðar. Það var allt í lagi að róa frá Hafn- arfirði þegar farið var að róa með „tvöfalt“ eins og það var kallað, og leggja þá tvær lagnir, nú orðið róa þeir með „þrefalt“, enda fór þá mjög að aukast lóðaútgerð frá Hafnar- firði, þegar þessi háttur var upptek- inn. Þegar farið var að leggja tvær lagn- ir í einu, gat maður farið alla leið vestur á Breiðafjörð, sem maður hafði engan tíma til áður, þegar land- að var daglega. Það var mikill munur að róa hér syðra, einkum að vetrarlagi. Að róa á vetrum syðra var næstum eins og að róa að vorinu heima. Hér eru aldrei harðir vetur í líkingu við það sem er vestra. Isingin og bylirnir voru tíðir þar. Það var ákaflega misjafnt um ísingarárin, sum árin var aldrei um neina umtalsverða ísingu að ræða, en önnur stanzlaus barátta við hana. Svo er sjólag verra fyrir Vestfjörð- um. Vondir straumhnútar, sem illt er að varast. Einn veturinn þegar ég réri frá ísa- firði, var ís úti á Halamiðunum en þangað rerum við oft ísfirðingarnir. Norðaustan brælur voru ríkjandi og margir annaðhvort reru ekki eða sneru aftur í Djúpinu. Ég hafði þá einskipa farið alla leið útundir ís- brúnina, og þar var sjólaust, Svo sem venja er ef um ísbreiðu er að ræða á löngu svæði. En þetta var ekki fyrir- hafnarlaust. Við urðum að byrja á að hreinsa ís af bátnum, sem safnaðist á hann í höfninni milli róðra, síðan að berja af klaka til að geta lagt og aftur þegar farið var að draga, og enn áður en landstímið hófst og loks til að geta landað. Ég fór þarna þrjá róðra einskipa og þeir voru samfelldir klakabarn- ingar. í fjórðu lögninni kom hreyfing á ísinn og hann var þá kominn í vest- an vindinn, ég fékk ísinn yfir nokkrar lóðir og missti þær náttúrlega. Mér er það minnisstætt, þegar ég eitt sinn var að koma norður með, hafði verið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Sjómannadagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.