Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1992, Side 46

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1992, Side 46
44 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 50ÁRA SÖLUMIÐSTÖÐ HRAÐFRYSTIHÚSANNA — Skyrið varð að frosnum flski — Ef frá eru taldar tilraunir, sem urðu endasleppar, tilraun ís- félagsins í Vestmannaeyjum til að frysta lúðu og tilraun nokkurra aðila til að pækilfrysta fisk, þá er það upphaf hraðfrystingar hérlendis, að 1934 fékk Ingólfur Espólín styrk til að frysta skyr — en frysti fisk. — Af skyrfrystingunni er svo engin sagan, en þeim mun veglegri af fryst- ingu fisks. Ingólfur hafði sem sé laumast í þessa óhæfu, en þegar upp- víst varð um verknaðinn reyndust honum flestar bjargir bannaðar hjá opinberum aðilum. Fiskifélagið studdi þó við bakið á Ingólfi, og hafði keypt fisk fyrir þúsund krónur fyrir Ingólf að flaka og frysta í húsi sínu. Olafur B. Björnsson á Akranesi studdi Ingólf dyggilega á Fiskiþingi 1934 og hafði þá í höndum skýrslu frá Vilhjálmi Finsen um hraðfrystingu fisks í Noregi og þar sagt að Norð- menn verðu miklu fé til að koma þessari fiskvinnsluaðferð í gagnið og í Bandaríkjunum væri þetta orðið mikil iðngrein. Árið 1930 hafi þar í landi verið fryst 140 milljón pund og frystihúsin selt fyrir 16,5 milljónir dollara. Þá hafði og Helgi Briem, sendifull- trúi á Spáni, sagt í skýrslu: „Þar sem hitar eru miklir er kæling framtíðar fiskgeymslu aðferð. Síðan kælivélar fyrst voru gerðar fyrir 60 árum, hafa kæld matvæli farið sigurför um menningarlönd . . . fyrir fiski- mannaþjóð eins og okkur íslendinga muni freðfiskframleiðsla hafa mikla þýðingu.“ Fiskimálanefnd, sem var allsráð- andi, gekk í málið og reisti lítið frysti- hús. í útflutningsskýrslu 1935 má sjá að flutt hafa verið út það ár 626 tonn af frystum fiski að verðmæti 212 þús. kr. og verðið þá verið 34 aurar pr. kíló. Árið 1936 höfðu verið reist 6 fiski- hús í landinu, en þá hafði fengist enskur markaður fyrir frystan fisk, en ári síðar voru þau orðin 14 og 1940 31 og þá orðið sýnt að hraðfrystiiðn- aður yrði mikil útflutningsbúbót auk þess að verða mikilsverð atvinnu- grein. Þegar S.H. varstofnað 25. febrúar 1942 voru frystihúsin orðin 44 (47?) og hlutur frysta fisksins 11,3% af verðmæti sjávarafurða. Á stríðsár- unum var ísaður fiskur 76% af fisk- aflanum og 1945 í lok stríðsins var þessi hlutur enn 69% af fiskaflanum, en 42,7% af heildarverðmæti sjávar- afurða, en frystur fiskur þá orðinn 26%. Árið 1944 settu Samtökin upp söluskrifstofu í Bandaríkjunum og 1947 varð sú skrifstofa sjálfstætt fyrirtæki, hið fræga Coldwater, sem síðan byggði upp og treysti banda- ríska markaðinn og SH eignaðist rík- an afkomanda í Ameríku, sem varð skjól þess, sverð og skjöldur á þess- um aðalmarkaði, en þurfti mikið til sín. I Bandaríkjunum verða fyrirtæki að bera sig. Coldwater varð eftirlæt- isbarn og dekrað við það, og lifði eins og blómi í eggi, þegar öll frystihús landsins löptu dauðann úr kráku- skel. Hver vill þó drepa Coldwater? Þess tími á ekki að vera liðinn. Þjóð- in þarf að standa mörgum fótum á mörkuðum, og Bandaríkjamarkaður gæti átt eftir að verða haldreipi á ný, en þá ekki skjótunninn, ef hann félli alveg út, og allt þá fyrir bí, sem þar hefur verið unnið. í sama mund og þetta var komst SH með sinn hraðfrysta fisk inná Rússlandsmarkað, og er það ekki of- sagt, að Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna hafi bjargað þjóðinni á þessum árum. ísfisksala til Bretlands hafði dreg- izt saman fljótlega eftir styrjöldina, og saltfisksvinnslan varð að vinna sig upp á ný eftir að hafa nær alveg lagzt af á stríðsárunum. Þegar vegur SH var sem mestur, má segja að samtökin réðu fyrir land- inu ásamt sölusamtökum Sambands ísl. samvinnufélaga og Sölusambandi ísl. fiskframleiðenda og margur þar mikill bógurinn og málfylgjumenn miklir hafa þeir SH menn þótt um tíðina. Það mætti kannski orða þetta svo, að þar hafi hver maðurinn verið öðrum meiri hafgammur, en þó léku þeir mjög tveimur skjöldum. Þegar þeir náðu ekki sínu fram með harð- fylgi, klæddust þeir tötrum og gengu á fund landsfeðranna og lýstu sínum hlut hörmulegum. „Sjá nú hvað ég er beinaber, brjóstin visin og fölar kinn- ar,“ og höfðu sitt fram í því gervinu. Þeir hafa oft staðið í ströngu SH menn. Harðast hefur líklega kreppt að SH á árunum 1067-68. Þá bjuggu samtökin bæði við verðfall og sölu- tregðu. Það fylgdi SH líkt og SÍF og SIS, að traust viðskiptasambönd voru þeim höfuðmál, og er það skilj- anlegt um heildarsamtök. Af ótta við að skerða eða missa örugg viðskipta- sambönd, gætti tregðu til að leita nýrra markaða eða nýjunga í vinnslu. Þetta hefur breyst hin síðustu ár, enda liggur ekki sami þungi á sam- tökum þessum og áður, þegar þjóðin átti allt sitt undir því að þau stigu ekki misheppnað víxlspor. Núverandi formaður stjórnar er Jón Ingvarsson, en forstjóri Friðrik Pálsson. Með von um að SH standi sig jafn- vel í samkeppni og það gerði sem brautryðjandi og bjargvættur á fimmta áratugnum er fyrirtækinu óskað til hamingju með afmælið.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.