Sjómannadagsblaðið

Årgang

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1992, Side 47

Sjómannadagsblaðið - 01.06.1992, Side 47
SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ 45 60 ARA SÖLUSAMBAND ÍSLENZKRA FISKFRAMLEIÐENDA — Allir vildu selja, enginn kaupa — Sölusamband íslenzkra fisk- framleiðenda, skammstafað S.Í.F. var stofnað í byrjun júlí 1932 að undangengnu miklu vand- ræðaástandi og ringulreið í útflutn- ingi sjávarafurða, sem átti sér margar samverkandi orsakir. Upphafs orða- lag Landsbankaskýrslunnar fyrir 1932: „Allir vildu selja, enginn kaupa“ — segir söguna í fæstum orð- um. Fiskframleiðendur úti um allt land voru sambandslausir við umheim- inn. Menn gátu svo lítið séð fyrir í markaðsmálum, og þó menn sæju og vissu að markaðir væru lélegir, þá treystu þeir á gamla ganginn, upp- sveiflu eftir fall. Það hafði alltaf svo til gengið, að fiskur féll í verði vegna offramboðs í miklum aflaárum, eins og voru hérlendis árin 1930 og 1931, eða við Nýfundnaland (Frakkar og Spánverjar), eða Noreg. Birgðir hrúguðust upp 1932. Verð- fallið 1930 reyndist ekki nein „uppá- koma“. Orsökin var ekki offramboð eins eða tveggja ára, heldur sjálf „Heimskreppan“. Vandinn var ekk- ert smáræði. Verð á skippundi var 1928 kr., 150-155, en haustið 1930 kr. 75,-. „ . . . verðfallið á flestum fiskteg- undum svo ægilegt, að heita má, að útgerð landsmanna liggi nú í molum um áramótin“ sagði fiskimálastjóri í Ægi. Það kom svikaglæta um mitt ár 1931, með 95 kr. verði, en í því verði reyndist engin ending og um haustið var verðið 55-60 kr. Og svo kom þriðja aflaárið og það mesta 1932 og birgðir hrúguðust upp. Árið 1931 höfðum við selt fisk á aðalmarkaðn- um, Spánarmarkaðnum, fyrir 25,9 milljónir króna, en árið 1932 fyrir 13,3 milljónir og viðskiptin við Bret- land dregizt saman á þessum sama tíma 1929-32 úr 12,5 milljónum í 6 milljónir. Italíuviðskipti úr 9 milljón- um í 6 milljónir, Portúgalsviðskipti voru þau einu, sem höfðu aukist, en það dró ekki neitt sem hét til að mæta óförunum, þau jukust úr 3,5 milljón- um í 5,4 milljónir. Þegar kemur fram á 1932 og landið orðið fullt af óseljanlegum saltfiski eftir mikla saltfisksvertíð 1932, gekkst Landsbankinn og Utvegs- bankinn fyrir stofnun S.I.F. Menn skildu nú loks, hvaða óvættur hafði lagzt yfir landið, sem önnur lönd. Viðskiptaþjóðir okkar höfðu hlaðið um sig múr tolla- og innflutnings- hafta og svonefnd jafnvirðiskaupa- stefna var orðin ríkjandi viðskipta- máti. f júlíbyrjun 1932 var Sölusamband íslenzkra fiskframleiðenda stofnað. Fyrstu stjórnina skipuðu: Kristján Einarsson, Ólafur Proppé og Richard Thors, en meðstjórnendur, bankastjórarnir Magnús Sigurðsson •og Helgi Guðmundsson. Fyrstu framkvæmdastjórarnir voru Kristján Einarsson og Helgi Þórarinsson. Þegar jafnvirðiskaup voru orðin ríkjandi við markaðslandið, var þýð- ingarlaust fyrir einstaka fiskverkend- ur að selja á markaðnum. Einstakir fiskseljendur gátu ekki tekið Spánar- vín á móti fiski, því að SÍF menn voru ekki ölglaðir menn nema í hófum sín- um. Það var ekki um annað að ræða en ríkisviðskipti og heildarsölu. Hin- ir ýmsu fiskverkendur í landinu voru heldur ekki í stakk búnir til að annast markaðsleit, höfðu hvorki á því efni né þekkingu. Þarna varð að gera út menn, valda menn að þekkingu og röskleik, með heildaryfirsýn og kunnugleika í markaðslöndum og ynnu í samráði við ríkisstjórnina. Stríðstímar og kreppa krefjast jafnan sérstakra aðgerða. SÍF-menn unnu strax það þrek- virki að losa landið við birgðir, en verðinu fengu þeir ekki breytt, það var 442 kr. tonnið á móti 439 kr. 1931 eða 74 kr. skpd. SÍF stóð í ströngu öll kreppuárin, en það hefur aldrei farið á milli mála að stofnun Sambands ísl. fiskfram- leiðenda 1932 var landi og þjóð til mikillar bjargar. Árið 1935 fengu samtökin löggildingu sem aðal salt- fisksútflytjandi landsins á saltfiski. Það varð svo löngu síðar, og þá breyttir tímar, að menn tóku að spyrja sig hvort þessi samtök, með einkasölurétt eða jafngildi hans hefðu sama gildi á öllum tímum, jafnt góðum sem vondum, og við allt aðrar aðstæður en verið höfðu við stofnun samtakanna. Menn eru enn að spyrja sig þessarar spurningar og deila um svarið. Enginn er þó sá, að hann vilji leggja SIF niður með sín traustu viðskipti og miklu reynslu og þekkingu í saltfisksölu. Núverandi formaður stjórnar er Dagbjartur Einarsson, en framkvæmdastjóri Sigurður Haraldsson. Afmælisbarninu er óskað til ham- ingju. Sagan hér rifjuð upp til að minna SÍF menn á að samtökin hafa séð heiminn svartari í álinn en nú. Það voru áhyggjufullir menn, sem stofnuðu SÍF sumarið 1932. Sumarið það átti margur fiskselj- andi andvökunótt og sáu ekki sólina, þótt hún skini skært á saltfisksbreið- urnar, og hinir fyrrum ástsælu fisk- staflar, hjarta þeirra og þjóðarinnar, vöktu þeim skelfingu.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Sjómannadagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannadagsblaðið
https://timarit.is/publication/557

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.