Eimreiðin - 01.04.1933, Blaðsíða 30
142
VIÐ ÞJÓÐVEGINN
EIMREIÐIN
að vært og vaknað síðan aftur innan ákveðins tíma til að
byrja að nýja. Annars mun óþarfi að leita svona langt eftir
dæmum, því nokkuð mun það algengt að menn vaki við störf
langt um fram fastan vinnutíma og eigi auðvelt með að sofna
á hvaða tíma dags sem er. Einkum á þetta við um sjómenn.
Eitt af víðlesnustu tímaritum Englendinga sendi eitt sinn
út fyrirspurn til nokkur hundruð stjórnmálamanna, listamanna,
rithöfunda o. s. frv., um það, hve margra klukkustunda svefn
þeir þyrftu á sólarhring, hvenær þeir gengju til hvíldar og
hvað þeir teldu bezta ráðið við svefnleysi. Flestir töldu sig
þurfa 7—8 tíma svefn, nokkrir meiri, alt upp í 9x/2 tíma,
aðrir minna, alt niður í 3 tíma. Ramsay MacDonald, núver-
andi forsætisráðherra Breta, taldi sig þurfa 6—7 tíma svefn,
leikkonan Ellen Terry 4 eða 6 tíma og prófessor sir W. M-
Ramsay 3—4 tíma. Flestir gengu að jafnaði til svefns milli
kl. 11 og 12 að kveldi, margir kl. 10 og allmargir enn fyr,
eða milli 9 og 10 að kveldi. Þingmenn og leikarar töldu sig
sjaldnast komast í rúmið fyr en eftir miðnætti, þingmenn
vegna kvöldfunda, leikarar vegna starfs síns í leikhúsunuw>
En einn þingmanna lét þess getið í svari sínu, að sér þætti
aldrei eins gott að fá sér blund eins og á þingfundum í neðri
málstofunni — og þótti vel svarað. Ráðin við svefnleysi voru
margvísleg, svo sem lestur í rúminu undir svefninn, hreint
loft, íþróttir, sérstakt matarhæfi, líkamleg vinna, föstur, alt að
12 tímum áður en gengið er til hvíldar, alger útrýming kvíða
og heilabrota undir nóttina o. s. frv., o. s. frv.
Enn sem komið er vita vísindin harla fátt um eðli svefns-
ins, orsakir hans og lögmál þau, er hann lýtur. Aðeins vita
menn af eigin reynslu, að svefninn er einhverskonar orku-
hleðsla, að með honum endurnýjast lífsaflið, og að án svefns
getur enginn lifað til lengdar. Hitt er^ lítt rannsakað mál.
hvort vér sofum of mikið eða of lítið. Ur því getur hver oS
einn bezt skorið sjálfur með því að prófa sig áfram. Ef
kenning Th. Stöckmann-Duisburgs er rétt og ef tekið verður
að fara eftir henni í framtíðinni, mundi vökulíf manna lengi'
ast við það um alt að einum sjötta hluta, en það samsvaraf
um 4 vökustundum á sólarhring í viðbót á hvern mann 1
landinu, því að meðaltali munu menn hér á landi ekki sofa
minna en 8—8V2 klukkustundir á sólarhring, þótt nokkraf
séu undantekningar frá þessari reglu.
Trúarbrögð Hvergi eru fleiri kynkvíslir saman komnar, oð
Indlands. þlandaðar á allar lundir, en í Indlandi. Svo
erfitt er að greina þar sundur þjóðerni og kynkvíslir, að In»'
landsstjórn flokkar íbúana eftir trúarbrögðum en ekki þjóðerni.