Eimreiðin - 01.04.1933, Blaðsíða 73
EIMREIÐIN ÞjÓÐERNISST. í ÞVZKUM BÓKM. 18S
Skáldin í Þýzkalandi leita nú ekki aðeins að sérkennileg-
um þýzkum rótum alls andlegs lífs þar í landinu, heldur minn-
ast þau einnig þess, að þýzka menningin er sprottin úr jarð-
vegi germanskrar menningar. Ahugi á germönskum fræðum
hefur varla nokkurn tíma verið eins mikill og almennur og
uú á dögum, enda hafa Þjóðverjar oft dáðst of mikið að
andlegum afrekum forngrískra, austurlenzkra eða rómanskra
manna. Hinn germanski andi hneigðist minna að lofgjörð um
velsæld og lífsnautnir en að dýrkun viljakrafts og mannlegs
dugnaðar. Djúp alvara einkennir margþættan skáldskap Qer-
fnana meira en léttúð og hugsunarleysi. Margir höfundar
reyna nú aftur að endurlífga hugsunarhátt og lundarfar Forn-
Germana og skapa ný skáldverk í anda germönsku þjóðanna
Yfirleitt. Þar að auki veita menn eftirtekt öllum skáldum
Norðurlanda, þar eð verk þeirra standa oft mjög nærri ger-
uianskri lífsskoðun. Það er varla til það skáld á Norðurlönd-
um, sem hefur ekki fengið verk sín gefin út á þýzku og
notið góðs orðstírs hjá þýzkum lesendum. Fremst í röð þeirra
standa Knut Hamsun, Sigrid Undset og Gunnar Gunnars-
son. Áhrifa germansks skáldskapar gætir jafnvel í frásagnar-
stíl margra ungu höfundanna í Þýzkalandi, og þeir eru
nieira að segja farnir að reyna aftur krafta sína á fornum
bragarháttum.
Þannig eru mótmæli gegn andlegri fríhyggju og andlegum
alþjóðastefnum, gegn einstaklingshyggju og sundrung, annað
aðaleinkenni mikils hluta þýzks skáldskapar, en að hinu leyt-
inu aðhyllist hann hugsjónina um þjóðlegt samfélag og varð-
veizlu hins eðlilega grundvallar þýzkrar þjóðar og menningar,
°9 samband hennar við menningarríki Germana.
Að lokum ætla ég að kynna þeim, er þetta lesa, nokkra
ioringja þessarar nýju stefnu. Nefni ég þá fyrst Hans Grimm.
Bók hans, »Volk ohne Raum*, er nú ein af þeim mest lesnu
bókum í Þýzkalandi. »Þjóðin án olnbogarúms* er þýzka þjóðin.
Land hennar er orðið of þröngt fyrir bændurna, verksmiðjur
hennar veita verkamönnum ekki nægilegt brauð, friðarsamn-
ingurinn hefur dregið enn meira úr lífsmöguleikum hennar,
róttækir stjórnmálaflokkar verða henni ekki til heilla. Corne-
lius Friebott, aðalpersónan í skáldsögunni, reynir, þegar fyrir