Eimreiðin - 01.07.1933, Qupperneq 19
eimreiðin
VIÐ ÞJÓÐVEGINN
24 S
brefalt stærri en sú næst stærsta, er skuld Þýzkalands. Hún
er 5,4 miljarðar ríkismarka, þ. e. um 8,6 miljarðar íslenzkra
króna með núverandi gengi. íbúatala Þýzkalands er talin um
64 miljónir. Koma því rúmlega 134 kr. á hvern íbúa lands-
Ins, í þessum erlendu skuldum. Ef vér tökum skuldir Islands
yið útlönd eins og þær voru í árslok 1931, þ. e. kr. 81,536,000,.
koma kr. 740 á hvern íbúa landsins. Rétt er þó að draga
frá skuldarupphæðinni skuldir einstaklinga og stofnana eins
°9 þær voru í árslok 1931 eða kr. 19,337,000. En með
Wí að reikna aðeins skuldir ríkis, bæja og banka eða kr.
62,199,000, kemur um 565 kr. skuld á hvert mannsbarn í
landinu. ]afnvel þótt skuldir banka séu dregnar frá íslenzku
skuldarupphæðinni, verður þó skuldin á mann nálega þrefalt
hærri hér en í Þýzkalandi. Utanríkisverzlunar-umsetning land-
anna kemur og til greina, en hún var um 14,8 miljarðar ísl.
króna 1932 hjá Þjóðverjum, en um 80 miljónir hjá oss. Svo
heldur bætir hún ef til vill samanburðinn oss í hag. En sam-
anburður eins og þessi, þó að lauslegur sé, gefur eigi að
síður alvarlegt efni til umhugsunar.
Þingsins 1933 mun verða minst í sögu þjóðarinnar fyrir
^ent: Það samþykti stjórnarskrárbreytingu, sem felur í sér
allmiklar réttarbætur, þegar til framkvæmda kemur, en hefur
kað jafnframt í för með sér, að þingmönnum fjölgar um all-
álitlegan hluta, svo enn bætist í hóp þeirra manna, sem þjóðin
Stiómarskr'r l'e^ur M forráða og um leið að nokkru leyti á
breytingjn framfæri. Kjördæmum mátti ekki fækka. Þing-
menn vildu ekki missa af gömlu kjördæmun-
Utn, og var þá það ráð tekið að fjölga þingmönnum til jöfn-
Unar á flokkana. Er það gert með það fyrir augum, að hver
Hokkur fái upp úr atkvæðamagni sínu eins og honum ber.
fær sú regla ekki að gilda til fulls, og enginn þarf
ælla, að ánægjan verði óskift, þó að stjórnarskrárbreyt-
In9m verði nú samþykt endanlega á næsta þingi, eins og
9era má ráð fyrir.
1 öðru lagi samþykti þingið að stofna svo nefndan kreppu-
anasjóð, undir 3ja manna stjórn fyrstu árin og með 70—80
’fianna aðstoðarliði. Sjóður þessi á að hafa að stofnfé alt að
miljón króna, sem að vísu er ekki til þegar sjóðurinn er