Eimreiðin - 01.07.1933, Blaðsíða 24
248
VIÐ ÞJÓÐVEGINN
EIMREIÐIW
og prinsar, ráðherrar og stjórnmálaleiðtogar keppast um að
heiðra hann, herskip er sent eftir honum til Evrópu, og eng-
, inn af herkonungum mannkynssögunnar hefur
Lindbergh.Um eins viðhafnarmikla sigurför eins og
Lindbergh fór á leið sinni heim. Hann kvæn-
ist einni af ágætustu konum þjóðar sinnar, er sendur til að
bera sáttarorð á milli ríkja, vinnur ný flugafrek, alt leikur
í lyndi, og það er ekkert sem skyggir á veg hans. Þá kemur
reiðarslagið. Hörmulegur atburður gerist. Hafa guðirnir reiðst
yfir hinu einstæða gengi þessa manns? Dýrmætasta gjöf þeirra
er numin brott frá ungu hjónunum á hinn sorglegasta hátt
Og ein aðalorsökin til þess skelfilega atburðar er einmitt
vegur þessara hjóna og frægð. Er að undra þó að þau
hafi fyrir löngu fengið nóg af þeim gauragangi öllum, sem
frægðinni fylgir? Getur nokkur maður með skilningi láð þeim
það, þó að þau fari nú svo að segja huldu höfði?
Lindbergh er fæddur í borginni Detroit í Michiganfylki i
Bandaríkjum Norður-Ameríku 4. febrúar 1902 og er því að-
eins 31 árs að aldri. Faðir hans var fæddur í Stokkhólmi
í Svíþjóð, og er Lindbergh í föðurætt af góðu sænsku fólki
kominn, en móðir hans er af enskum, írskum og frönskum
ættum. Þegar hann var tveggja mánaða fluttu foreldrar hans
með hann heim á sveitabæ, sem þau áttu á vesturbakka Missi-
sippi-fljótsins, og á bæ þessum ólst hann upp fjögur fyrstu
ár æfinnar, en eftir að faðir hans varð þingmaður, átti fjöl-
skyldan heima í Washington á veturna. Atta ára gamall fóf
hann í skóla í Washington, stundaði síðar nám við vélfræði-
deild Wisconsin-háskóla í Madison, og þar varð hann hug-
fanginn af flugi, þó að aldrei kæmist hann svo langt að fljúga
fyr en eftir að hann innritaðist í flugskóla í Lincoln í Ne-
braska árið 1922, en tíu ára gamall var hann, þegar hann sá
flugvél í fyrsta sinn, og varð það honum ógleymanleg sjón. 9.
apríl 1922 fór Lindbergh í flugvél í fyrsta sinn og eftir þaó
svo að segja daglega meðan hann var á flugskólanum. E°
hann hafði ekki nægilegt fé til þess að lúka þar námi til fullSr
vann í flugvélaverksmiðju fyrir 15 dollara á viku, stundaði
síðan flug með öðrum um tíma, en eftir að hann eignaðist
sjálfur flugvél fór hann að fljúga einn síns liðs, og tók Þa