Eimreiðin - 01.07.1933, Síða 30
254
VIÐ ÞJÓÐVEGINN
eimreiðin
vitnisburð þann, sem Lindbergh hafði fengið hjá kennuruffl
sínum, löngu áður en hann hafði vakið á sér nokkra al-
menna athygli. I annálum herskólans, sem hann gekk á, er
Men þess getið að hann sé greindur, starfsamur,
heimúrinn fv'sffln sér, áreiðanlegur, einbeittur, skjótráður,
þarfnast. alvörugefinn, varkár, staðfastur, hreinskilinn, o. s.
frv. Og einn af kennurum hans lætur þess getið,
að það sé sannfæring sín, að þessum unga manni muni farn-
ast alt giftusamlega, sem hann taki sér fyrir hendur. Þann
stutta tíma sem hann var hér, mun hann hafa vakið mesta
eftirtekt fyrir það, hve alþýðlegur hann er og ófús á að láta
nokkuð á sér bera. En það verður ekki dulið, að þar fer
brautryðjandi og karlmenni, þar sem hann er. Slíkra manna
þarfnast heimurinn ætíð.
Ef til vill lýsir fátt betur skapferli Lindberghs og konu hans
en það, hvernig þau tóku reiðarslagi því hinu mikla, er syni
þeirra kornungum var rænt 1. marz 1932, af þorpurum, sem
enn hafa ekki náðst, en barnið fanst síðar látið skamt frá
heimili Lindberghs, og talið að þorpararnir hafi á flóttanuffl
fyrirfarið því. Sveitasetur það, sem Lindbergh lét reisa og
átti heima á, stendur á fögrum stað í fjalllendi, og fylgja því
300 ekrur lands. Húsin á jörðinni eru reist eftir fyrirsögn
þeirra hjóna, og er sagt að jörðin með húsunum hafi kostað
Lindbergh 50.000 dollara. Þarna varð heimili ungu hjónanna,
og þarna gerðist atburðurinn, sem breytti þessu fagra heiffl-
kynni alt í einu í sorgarbústað. Blöðin auglýstu viðburðinn
með óhlífnum og særandi frásögnum. Spákaupmenn og gróða-
brallarar gerðu árangurslausar tilraunir til að fá eignina keypta,
þar sem þessi margumtalaði atburður hafði gerzt, buðu hátt
verð og hugðust mundu græða vel á að hafa eignina til sýnis
og draga þangað fólk. Leitin að ránsmönnunum, krafan uffl
lausnargjaldið fyrir barnið áður en lík þess fanst, yfirheyrzl-
urnar, alt var þetta sælgæti fyrir fréttaritara stórblaðanna.
Eftir að allar vonir um að fá barnið aftur höfðu brugðist,
tilkynti Lindbergh á sinn hógværa hátt, að heimili þeirra
hjóna myndi verða breytt í barnahæli. I vikublaðinu Literary
Digest frá 15. júlí þ. á. er skýrt frá aðaltilgangi Lindberghs
og Onnu konu hans með því að stofna þetta hæli, en hann