Eimreiðin - 01.07.1933, Page 61
eimreiðin
KAFLAR ÚR SAN MICHELE
285
sínar og væri enn að klæða sig uppi í svefnherbergi sínu. Ég
bað að fylgja mér þangað strax. Mér bæri að greiða tuttugu
franka fyrirfram og auk þess eitthvað til minja eftir eigin vild
handa Flopette, ef ég yrði ánægður með hana, sem ég áreið-
anlega yrði, því að hún væri indæl stúlka, préte a tout og mjög
úgolo. Hvort ég vildi láta koma með flösku af kampavíni
UPP á herbergið hennar.
Flopette sat fyrir framan spegilinn og var önnum kafin við
að farða sig. Hún spratt upp af stólnum, greip sjal til að
hylja með hinn lítt sýnilega búning sinn og starði á mig. And-
l't hennar var eins og á trúð, farðablettir á kinnunum, annað
auSað svart af koli, hitt rautt af gráti.
*Nei, hún er ekki dáin, en henni líður mjög illa. Nunnan,
Seiu á að vaka í nótt, er úrvinda af þreytu. Ég hef sagt henni,
ég ætli að koma með eina af hjúkrunarkonum mínum,
kl að vera hjá barninu í nótt. Skafið af yður þenna við-
bjóðslega lit, sléttið hárið með olíu eða smyrslum eða hverju
sem þér viljið, farið svo úr þessum andstyggilega mússilins-
^Yrtli og í hjúkrunarkvenna-einkennisbúninginn, sem er í þess-
Um böggli. Ég fékk búninginn að láni hjá einni af hjúkrunar-
l<onunum. Ég hugsa, að hann sé yður mátulegur, því að þér
eruð svipuð á vöxt og hún. Ég kem aftur að sækja yður eftir
hálftímac. Hún starði á eftir mér niður stigann og kom. ekki
UPP nokkru orði.
, *Kominn afturlc sagði matrónan og horfði á mig steinhissa.
E3 sagði henni, að ég vildi fá mademoiselle Flopette út með
mer í nótt, ég mundi koma aftur að sækja hana. Hálftíma
siðar, þegar vagninn ók mér aftur heim að húsinu, sá ég
Flopette standa í opnum dyrunum, klædda í skósíða hjúkrun-
arkvenna-búninginn, og utan um hana í hnapp alt mússilíns-
mædda kvenfólkið, sem var eins og það væri ekki í neinu.
*En hvað þú átt gott, en hvað þú átt gott«, suðuðu þær
UVer í kapp við aðra, »að fá að fara á grímuball í nótt! Fötin
ara þér anzi vel, og þú ert mjög virðuleg í þeim. Bara að
errann þinn vildi taka okkur allar með!«
”Amusez-vous, mes enfants“, sagði matrónan brosandi og
Vlgdi Flopette út að vagninum. »Það eru fimmtíu frankar og
ei2a að greiðast fyrirframc.