Eimreiðin - 01.07.1933, Síða 63
eimreiðin
KAFLAR ÚR SAN MICHELE
287
sem til þess að látast ekki vera hræddur. Schubert var nítján
ára, þegar hann samdi lagið við Álfakónginn eftir Goethe,-
sendi síðan Goethe lagið og tileinkaði honum það í auðmýkt.
Ég get aldrei fyrirgefið stærsta skáldi síðustu alda, að hann
skyldi ekki einu sinni svara með línu til þess að þakka
manninum, sem hafði gert ljóð hans ódauðlegt, og þetta var
sá sami Goethe, sem hafði nægan tíma til að skrifa þakkar-
bréf til Zelters fyrir tónsmíðar hans, sem ekki voru þó annað
eti meðalmensku verk. Skilningur Goethes á tónlist var eins
lélegur og skilningur hans á list. Hann dvaldi heilt ár á Italíu
án þess að skilja nokkuð í gotneskri list. Hin stranga frum-
ræna fegurð var honum ráðgáta. Carlo Dolci og Guido Reni
voru fyrirmyndir hans. Hann var meira að segja sljór fyrir
bví bezta úr grískri list; Apollo Belvedere var uppáhald hans.
Schubert sá aldrei hafið, og þó hefur ekkert tónskáld, enginn
málari, ekkert skáld nema Hómer, túlkað dýrð þess og kyrð,
leYndardómsfulla fegurð þess og ofsa, eins og hann. Hann sá
aldrei fljótið Níl, og þó gætu upphafstónarnir í hinu dásam-
*e2a lagi hans Memnon alveg eins hafa hljómað í Luxor-
musterinu. Hann þekti hvorki hellenska list eða bókmentir,.
nema það litla, sem vinur hans, Mayerhofer, kann að hafa
træft hann um, og þó eru tónverk hans Die Götter Griechen-
hndes, Prometheus, Ganymedes og Fragment aus Aeschylus,
snildarverk, eins og upprunnin væru frá gullöld Hellena. Hann
*ór á mis við ástir kvenna, og þó hefur aldrei eins sárt ástar-
kvein hljómað í eyrum vorum eins og í lagi hans Gretchen
am Spinnrade, enginn átakanlegri lausnaróður heyrst en Mignon
hans, enginn yndislegri ástarsöngur verið sunginn en Stand-
°hen hans. Hann var þrjátíu og eins árs þegar hann dó, og
hann dó bláfátækur, eins og hann hafði lifað. Sami maðurinn
°9 samdi An die Musik átti ekki einu sinni píanó. Að hon-
um látnum voru allar jarðneskar eigur hans, fötin, fáeinar
^ækur, rúmið hans, seldar á uppboði fyrir 63 flórínur. í velktri
tösku undir rúminu hans fundust um tveir tugir annara ódauð-
le9ra lagsmíða eftir hann, lagsmíða, sem voru meira virði en
alt aull Rothschildanna í Vínarborg, borginni þar sem hann
lifði og dó.