Eimreiðin - 01.07.1933, Qupperneq 73
EIMREIÐIN
KOLBEINSEV
297
t>eir hið versta veður og sjóa og náðu landi á Hraunum í
fljófum eftir tveggja sólarhringa svaðilför. En strax og birti
til og veðrinu slotaði, lögðu þeir til hafs á nýjan leik. Hreptu
t*eir enn austanvind mikinn og dimmviðri. Þegar þeir höfðu
s*9lt í tvö dægur, sótti þá Jón og Bjarna svo mikill svefn, að
teir gátu ekki haldið sér uppi. Tóku þeir þá það ráð, að
þeir bundu seglið fast og lögðust fyrir, en Einar var við stjórn,
aðeins hálfvakandi. Um þetta leyti létti nokkuð af dimmviðr-
*nu, svo að sást til sólar, og var hún þá komin í vestur, en
í>l austurs var að sjá eitthvað hvítt, og hugði Einar það mundi
Vera hafskip undir fullum seglum. En brátt sá hann að þetta
var hæsta bjargið á Kolbeinsey sjálfri, og var það alhvítt af
^Íargfugli.
Um þetta kveður séra Jón Einarsson:
„Eylands var það efsti balinn,
alhvítur af bjargfýling;
augun fengu hann ekki talinn,
eins og saei á fífubyng".
Vakti þá Einar bræður sína og tjáði þeim, að þeir væru
^oinnir undir eyna. Þeir bræður ruku á fætur og tréfeldu,
tóku til ára og drógu sig upp í eyjarvarið, þó veður væri
enn mikið, en þeir voru svo röskir menn, að sagt var að
t>eir réru viku sjávar á eyktinni *). Komust þeir svo að skeri
nokkru við eyna og sópuðu þar saman fugli með báðum
n°ndum, svo var hann mikill og spakur. Síðan rendu þeir
ærum undir eynni; en ekki urðu þeir fiskvarir að sama
skapi sem fUgiinn var mikill. Lögðu þeir svo að landi í vík
e,nni, köstuðu stjóra og festu aftur af skipinu, en sú yfirsjón
varð þeim, að þeir gleymdu að fesía landfestina (fangalínu)f
er þeir gengu upp, svo brimsúgurinn tók hana út fyrir þeim.
^ því veður var mikið, tók skipið þegar að reka undan eynni,
Pvi stjórann tók þegar á loft vegna snardýpisins, sem er við
eVna. Urðu þeir að horfa á þetta, þar sem þeir stóðu alls-
nusir á flúðunum. Var það ekki að undra þótt þeir kæmust
v*ð af ástandi sínu, þar sem ekkert var fyrirsjáanlegt nema
°Pinn dauðinn. Bjarni var syndur og lagðist tvisvar til sunds
*) Vika sjávar = 7421,43 m. Eykt = 3 kl.st.