Eimreiðin - 01.07.1933, Qupperneq 88
312
ENDURMINNINGAR
EIMREIÐIN
Það, sem hann orti, var flest frá almennu sjónarmiði og
öldungis persónulaust; átti víst að vera eitthvað klassiskt í
þessu, og var hann stundum að fræða mig á því, að svona
ætti að yrkja, því þá gæti hver og einn lesandinn sjálfur
hugsað sér sínar persónur í stað persóna skáldsins.
Voru því stúlkurnar, sem hann var að elska í kvæðunum,
alveg eins og þín — eða mín — stúlka! Og allar voru þær
á vaðmálsfötum ofan úr afdölum; en hann var og er nú ekki
einn um þessa fásinnu að halda það, að stúlkurnar séu ís-
lenzkari í sveitinni en við sjávarsíðuna.
Sama var að segja um heimsádeilur Bjarna, þær hittu ekki.
Hann gaf út ljóðakver og nefndi »Dauðastundin«; las ég
það, en man ekki nokkra hendingu, og annan árangur hygg
ég hann hafi ekki haft af því fyrirtæki en að gárungarnir
í kunningjahóp hans gáfu honum gælunafnið: »á dauðastund-
inni«.
Þessar heimsádeilu-hnútur sínar afvatnaði hann með al-
mennum hugleiðingum, þangað til enginn fann nokkurt bragð
að þeim, nema hann sjálfur og einkum þegar hann var við
vín, eins og gengur og gerist.
Þá var hann í standi til að þylja þetta miskunarlaust yfir
okkur og var þá erfiður í sambúð; en aldrei fanst mér koma
til mála að afþakka þennan kvæðalestur, því æfinlega og í
hvert sinn var auðséð á honum, að honum var mikið mál
að leysa frá skjóðunni og þá var það líka, að hann var svo
undirhyggju- og hrekklaus og altaf að fræða mann, og alt
hafði hann lesið og var stálminnugur; finn ég mig í þessu
efni í mikilli skuld við Bjarna og mættu fleiri svo gera, ef
þeir vildu láta svo lítið.
Lítilsháttar gaf hann sig að íþróttum, ef svo mætti segja,
því skautaferðir og reiðtúrar, svo sem hann iðkaði þetta, getur
naumast talist til íþrótta, en var víst eingöngu með það fyrir
augum »að sýna sig og sjá aðra«, eða koma á mannamót;
hann rann sæmilega á skautum og sat hest eins og gengur
og gerist og hafði um tíma á stalli hér í Reykjavík — sem
hann ritaði Reykjarvík. Rithönd hafði hann ágæta, skýra,
hreina og áferðarfagra og tilgerðarlausa, en innihald kunn-
ingjabréfa hans og framsetning var oft »sett á skrúfur*, eða