Eimreiðin - 01.07.1933, Síða 122
346
FRÁ LANDAMÆRUNUM
EIMREIÐIN
búin. í framhaldi leiltsins er síöan
Iýst lífi sama fólks hér á jöröunni,
baráftu þess og sigrum, og síðan
endurkomu þess í annan heim. Ein
aðalpersónan er kvæntur maður,
sem dauðinn kallar frá eiginkonunni,
skömmu áður en hún fæðir barn,
sem hún hefur gefið nafn áður en
hann deyr, ef barnið skyldi verða
stúlka. Flestir eru fegnir heimkom-
unni frá jarðlífinu, nema kvænti
maðurinn, sem harmar skilnaðinn
við konu sína og þráir að komast
á fund hennar. Þá mætir hann aftur
ungu stúlkunni, sem ekki hafði verið
ferðbúin, þegar hann fór til jarð-
arinnar. Nú tjáist hún vilja fæðast
til þess að lifa ástina, hið fegursta
í tilverunni. Þá rennur það upp
fyrir honum að þarna sé barnið
hans, sem eigi að verða, á leiðinni
til jarðarinnar, og það muni annast
um móður sína og elska hana. Og
þetta sættir hann við dauðann. —
Margt fleira gerist í þessum sjón-
leik, sem hér eru ekki tök á að
lýsá nánar. Hann gerist bæði á
himni og jörðu og er merkilegt
sóknarskjal til stuðnings þeirri æfa-
gömlu hugmynd, að jarðlífið sé að-
eins einn hlekkur f Iangri keðju
lífs á mörgum mismunandi sviðum
eilífrar tilveru.
Deilan um miðlana. Altaf eru
öðru hvoru að rísa upp deilur um
miðla og ákærur að koma fram á
hendur þeim um svik. Það er varla
nokkur sá miðili, með verulega
hæfileika, að hann sleppi með öllu
undan þessum ákærum. Einhver
ötulasti miðlaákærandinn nú í Eng-
landi virðist vera hr. Harry Price,
sá sami sem á uppástunguna að
Ijósmerkjaútvarpinu til jarðstjörn-
unnar Marz og einnig fók þátt í
ferðinni til nornafjallsins Brocken
í fyrra sumar, svo sem frægt er
orðið, en á hvorttveggja þetta hefur
áður verið minst í Eimr. Harry
Price hefur haldið því fram, að
hann hafi uppgötvað svik hjá ljós-
myndamiðlinum William Hope, sem
nú er látinn, og ennfremur þykist
hann hafa komist að svikum hjá
miðlinum fræga Rudi Schneider.
Standa um þetta deilur í ýmsum
enskum, frönskum og þýzkum tíma-
rifum og blöðum um þessar mundir,
en eins og oftar reynist erfitt fyrir
lesendurna að dæma um, hvað sé
hið rétta í þessum málum. Franski
sálarrannsóknamaðurinn dr. E. Osty,
sem hefur veitt rannsóknastofunni
Institut Métapsychique í París for-
stöðu síðan árið 1925, og rann-
sakað Rudi Schneider að staðaldri,
telur hann mjög merkan miðil-
Fjöldi manna hafa staðfest, að Wil-
liam Hope hafi verið gæddur dul-
arhæfileikum og hrekklaus með öllu.
Virðist heldur halla á Price í rit-
deilum þessum, einkum í viður-
eigninni við dr. Osty.
Um eðli, uppruna og fram-
tíð lífsins. Undir þessari fyrir-
sögn hefur dr. Helgi Péfurss ritað
grein í þýzka tímaritið Zeitschriít
fiir Parapsychologie, aprílheftið þ-
á., en tímarit þetfa mun vera eift'
hvert bezta tímaritið um sálræn efm,
sem út er gefið á þýzka tunSu-
Aðalritstjóri þess er dr. med. PuU'
Súnner, en auk hans standa að
rifinu margir vísindamenn og há-
skólakennarar, þar á meðal hinn
nafnkunni franski sálfræðingur
Charles Richet, prófessor í Iffeðlis-
fræði við Parísarháskóla, Eugen