Eimreiðin - 01.10.1947, Page 33
etmreiðin
BLAÐI FLETT
257
Bréfið!
Nú man hún fyrst, hvað liún átti eftir að gera. En það er of
seint. Hann gengur inn í skrifstofuna, kveikir ljós, réttir út
höndina eftir bók — og þá---------.
Gerður hlustar. Steinhljóð óratíma. Umgangur og mannamál.
Hann hefur hringt eftir lækninum. Gerður sezt upp í rúminu
og hlær hátt og lengi. En hún tekur samt inn svefntöflurnar, sem
læknirinn gefur henni, og lofar að hún skuli ekki hreyfa sig úr
fúminu í nokkra daga.
Hann fylgir lækninum út og setzt svo á stól við rúmið hennar
og leggur aðra höndina á ennið á henni, en með hinni flettir
hann blaði í bókinni sinni.
hjáguðadýrkun.
Menntaðir menn eiga ekki mjög á hættu að falla fyrir lijáguðadýrkun
friimstæðra þjóða. Að vísu eimir enn eftir af trú á töfragripi, stokka og
8teina. En þó að þetta sé látið viðgangast, eins og t. d. áfengisnautn og
^aurlifnaður, þá er yfirleitt litið á það með vanþóknun.
Allt öðru máli gegnir með þá hjáguðadýrkun, sem er ávöxtur menn-
^gar nútímans. Hún er höfð í miklum heiðri. Leiðtogar lýðsins þreytast
^ldrei á að lofa liana og meta hana stundum til jafns við sjálfa trúna á
guð. Þessi svokallaða æðri lijáguðadýrkun lýsir sér á marga vegu, en
þó skipta í þrjá aðalflokka: hjáguðadýrkun tæknilegs, stjórnmálalegs
°g siðferðilegs cðlis.
Tæknileg hjáguðadýrkun er frumstæðust þessara þriggja tegunda, því
og villimennirnir, sem trúa á stokka og steina, lialda dýrkendur tækn-
^nnar, að frelsun og sáluhjálp manna sé undir efnislegum hlutum komin,
Sv° sem vélum og tækjum. Tæknilega lijáguðadýrkunin er orðin að lífs-
^eimspeki milljóna manna um víða veröld. í Sovet-samveldinu skorti um
lítið á, að hún næði þeim meluin að verða löggilt ríkistrú. Svo rík
er trúin á tæknileg skurðgoð orðin, að naumast verður vart lengur áhrifa
ra Btísku kenningunni fornu um Hubris og Nemesis. Huhris táknaði hvers-
koi>»r ofstjórn og óhóf. En slíkt hefnir sín ætíð, og þá kom Nemesis til
skJalanna.
Litlu frjórri cr hin pólitíska hjáguðadýrkun samtíðarinnar. í stað þess
'*^ dýrka véltæknina, kemur dýrkun allskonar þjóðfélagslegra og fjármála-
|egra hagkerfa. Ef aðeins er komið réttu skipulagi á viðskipti manna, þá
eysir það þá úr öllum vanda af sjálfu sér. Synd og sorgir, jafnvel styrjaldir,
17