Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1954, Page 14

Eimreiðin - 01.07.1954, Page 14
eimreiðin 166 VIÐ ÞJÓÐVEGINN leyti kennt um breyttri aðstöðu hér við land. Hr. F. Huntly Wood- cock, fiskveiðafulltrúi íslenzku sendisveitarinnar Rangfærslur í London, hefur gert athugasemdir í sama blaði leiðréttar. frá 18. ágúst við grein þessa. En hann hefur með mikilli elju haldið uppi svörum í brezkum blöðum gegn alls konar misskilningi og rangfærslum á málstað vorum. Þá hefur Björn Björnsson ritað grein í mánaðarritið „The Free Trader", ágústheftið 1954, um löndunarbannið. Hann lýkur grein sinni með því að benda á, hve óviðfelldið sé, að fámenn klíka, sem virðist hafa að takmarki að ná einokun á öllum fiski, skuli valda sundrungu milli vinveittra þjóða, sem báðar séu meðlimir í Norður-Atlantshafsbandalaginu. „Alit þetta framferði er hneyksli", segir höfundurinn og vitnar þar í orð ritstjóra tíma- ritsins „City Press“ frá 23. apríl þ. á„ í ritstjórnargrein um málið. Sendiherra íslands í London, Agnar Klemens Jónsson, hefur með bréfi, sem birt er í „Evening Telegraph" 25. ágúst þ. á„ and- mælt þeirri kenningu J. Croft Bakers, forseta Brezka togarasam- bandsins, sem hann hélt fram í grein frá 21. s. m. í blaðinu, að íslenzka stjórnin hafi fært út fiskveiðitakmörkin vegna kröfu frá íslenzkum bátaútvegsmönnum. Sendiherrann bendir á í bréfi sínu, að íslenzka stjórnin hafi í mörg ár verið búin að athuga málið, áður en hún tók hina endanlegu ákvörðun, og standi öll íslenzka þjóðin að henni, en ekki neinn einstakur flokkur eða stétt. Fisk- veiðitakmörkin hafi verið færð út til hagsbóta fyrir bæði inn- lenda og erlenda fiskimenn, enda sýni brezkar hagskýrslur, að ákvörðun íslenzku stjórnarinnar hafi orðið til góðs fyrir brezka togarasjómenn og útgerðarmenn, ekki síður en fyrir íslenzka fiskimenn. Fréttaritari „Daily Mail“, T. F. Thompson, rit- ar grein, þá nýkominn heim frá íslandi, og birtist hún í blaoinu 27. ágúst þ. á. undir fyrirsögninni: kalda stríðið. „ísland er nú í fremstu víglínu kalda stríðsins." Er í greininni lýst vaxandi verzlun Rússa við ísland, verzlunarsamningi íslendinga við þá upp á 4 milljónir sterlingspunda o. s. frv. Ennfremur er getið annarra markaða vorra fyrir fiskafurðir en í Rússlandi og bent á, að í viðtali við íslenzka kaupsýslumenn hafi komið í Ijós, að enda þótt vér getum selt allar fiskafurðir vorar annað en til Bretlands, þá sé það ósk vor að taka upp aftur ísfisksölu þangað. í greinarlok er frá því skýrt, að forsætisráðherra íslands hafi á fundi Norðurlandaráðsins íslenzki líorskurinn °g

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.