Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1954, Page 21

Eimreiðin - 01.07.1954, Page 21
E|MREIB1N ÍSLENZKAR NtJTÍMABÖKMENNTIR 173 þeir Tryggvi Sveinbjörnsson í Kaupmannahöfn og séra Jakob Jónsson einna helzt einbeitt sér að leikritagerð með bókmennta- legum árangri. Árið 1948 gaf séra Jakob út Sex leikrit. En einna niesti leiklistarviðburður varð, er Kiljan gaf út SnœfríSi íslands- s°l 1950 og hún var sýnd í Þjóðleikhúsinu. Ljóðagerðin er elzt, sérstæðust og þaulræktuðust íslenzkra listgreina. Iðkun kvæðagerðar hefur aldrei rofnað, frá því sögur þófust. Jafnt kotkarlar sem höfðingjar hafa lagt stund á vísna- smíði á öllum öldum Islands byggðar. Enn heldur þessi íþrótt velli með svo undraverðum árangri, að aldrei hafa verið uppi með þjóðinni fleiri góðskáld en einmitt nú, svo að vitað sé. Og enn þann dag i dag eru margfalt fleiri ljóða kaupendur og ljóða lesendur hér á landi, hlutfallslega, en með nágrannaþjóðunum, llrátt fyrir allt. Hvoruga þessa staðreynd er hægt að hrekja, enda ]}étt óspart sé látið dynja af sumum, er sjálfir fylgjast ekki Rieð á þessu sviði, að þar hafi orðið mikil afturför síðustu ára- tugi- Lastarar þessir frýja að vísu ekki Davíð Stefánssyni og 'l'ómasi Guðmundssyni snilldar. En miklu lengra nær ekki þeirra náð. Þeir dæma flesta þá ljóðasmiði, sem róttækir eru í skoðunum og að formi, atómskáld. Dylst eigi fyrirlitningin í slíkri nafngift. Á hinu leitinu eru svo gagnstæðar öfgar: allir iistamenn, sem fylgja þjóðlegri stefnu, dæmdir úr leik. Sam- kvaemt þessu sjónarmiði eru skáldin metin eftir línu og lit einungis, sá rauði ekki aðeins talinn lita beztur, heldur og hinn eini sáluhjálplegi litur. Metin á þessa vogarskál, eru borgaraleg skáld af svo nefndum gamla skólanum vegin og léttvæg fundin. Lau eru annaðhvort rökkuð niður eða þöguð i hel, sem er al- gengara og fyrirhafnarminna líflát. Þegar málafærslumenn þess- ara andstæðna eru spurðir, hvort þeir séu handgengnir verkum þessa eða hins skáldsins, fer það oftast eftir fyrirfram ákveðnu Áðhorfi, hvort svarið verður jákvætt eða neitandi. Sé aðspurður jábróðir umrædds skálds i lífsskoðun eða stjórnmálum, eru likur Lk að hann eða hún hafi kynnt sér verk þess af alúð, annars ekki. Augljóst er, að svona vilhöll sjónarmið og órökstuddir ðómar þeirra, sem telja sig einna helzt bæra um að fella þá, seu skáldunum ekki hollir. En sízt eru þeir þó þjóðinni heilsu- Samari. Sanngjarnt, en strangt mat á andlegum verðmætum Sem skáldskap er henni lífsnauðsyn. Þar má hvorki klíkuskapui

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.