Eimreiðin - 01.07.1954, Page 26
178
ISLENZKAR NOTJMABÓKMENNTIR
eimreiðin
þau GuSmund Daníelsson og Þórunni Magnúsdóttur, sem bæði
kváðu sér hljóðs á skáldaþingi 1933. Guðmundur hóf máls með
ljóðum, Ég heilsa þér. En þar sem flest aðalverk hans eru skáld-
sögur, er hann hér talinn með rithöfundum í lausu máli. Fyrsta
saga hans, BrœSurnir i Grashaga, var prýðilegt byrjandaverk.
Síðan hefur hann sent frá sér margar skáldsögur. Má til dæmis
nefna Á bökkum Bolafljóts og Musteri óttans. Bera sögur Guð-
mundar vitni um liugkvæmni og mikinn þrótt. Fyrstu sögu sína
nefndi Þórunn Dœtur Reykjavíkur. Náði hún þegar vinsældum-
En mesta sigur sinn til þessa hefur Þórunn unnið með skáld-
sögunni Dísu Mjöll 1953. Eftir Ármann Kr. Einarsson komu
Vonir, fyrsta bók hans, 1934. En mesta verk Ármanns til þessa
er Saga Jónmundar í Geisladal (1943). Virðist mér einkum
athyglisvert framhald hennar: Ung er jörSin. Eru talsverð til-
þrif í fyrri hlutanum. Einn snjallasti og vandfýsnasti höfundur
þessarar skáldakynslóðar er Ólafur Jóhann SigurSsson. Hann
hóf kornungur að rita barnabækur. Fyrst þeirra, ViS Álftavatn,
kom út 1934. En mestu verk Ólafs eru skáldsögur, til dæmis
LitbrigSi jarSarinnar og Vorköld jörS. Við smíði sumra smá-
sagna sinna hefur Ólafi mæta vel tekizt. Stíll hans er mjög fág-
aður. Þjóðkunn fyrir skáldsögur sínar og ævisögur er Elinborg
Lárusdóttir, sem hefur verið mjög mikilvirk, síðan hún kvað
sér hljóðs með Sögum 1935. Mesta skáldsaga Elinborgar, Föru-
menn, í þrem bindum, er merkileg sveitalífslýsing frá liðnum
tíma, rituð í rólegum stíl. Nokkuð sérstæður meðal skáldsagna-
höfunda þessa tímabils er Stefán Jónsson, sem hóf rithöfundar-
göngu sína með smásögum (Konan á klettinum 1936), haglega
gerðum. Helztu verk hans eru þó skáldsögur fyrir börn, til dæmis
Hjalti litli 1948, Mamma skilur allt 1950 og Hjalti kemur
heim 1951. En þær sögur eru jafnframt við hæfi fullorðinna.
Stefán hefur einnig ort vinsæl barnaljóð. Rósa B. Blöndals gaf
út athyglisverða skáldsögu, LífiS er leikur, 1938. Hún hefui'
einnig birt hreimþýð ljóð. Stefán Júlíusson byrjaði að gefa út
vinsælar barnabækur 1938 (Kári og litli Lappi). En mesta viður-
kenningu hefur hann hlotið fyrir skáldsöguna LeiSin lá til Vest-
urheims 1950, ritaða undir höfundarnafninu Sveinn ÁuSunn
Sveinsson. Hann gaf og út vel heppnaðar smásögur, VitiS þér
enn —? 1952. Þó að Þórir Bergsson yrði kunnur fyrir vel gerðar