Eimreiðin - 01.07.1954, Side 48
200
ÓLAFUR 1 HVALLÁTRUM
eimreiðin
aðallega hafa verið í Sviðnum í skjóli föður síns, en gerðist siðar
bóndi í Bjarneyjum. Hann hafði áður verið ráðsmaður á Skarði
hjá Kristjáni kammerráði Magnúsen og frú Ingibjörgu, konu
hans, og þótti atgervismaður. Hann drukknaði 7. marz 1899
tæplega sextugur að aldri (fæddur 23. sept. 1839). Faðir hans
var Ólafur bóndi í Sviðnum (fæddur 17. október 1810, dáinn
19. ágúst 1892) Teitsson bónda á Kinnarstöðum í Þorskafirði,
siðar á Klukkufelli í Reykhólasveit, Ólafssonar, og verður sú
ætt rakin í beinan legg til Narfa Þorvaldssonar á Narfeyri og
þaðan til hinna fornu Seldæla.
Móðir Ólafs Bergsveinssonar í Hvallátrum var, eins og áður
segir, Ingveldur Skúladóttir (fædd 5. júli 1843) bónda í Fagurey
og síðar í Hellisbæ við Hellissand, Jónssonar og konu hans,
Guðrúnar Hannesdóttur. Skúli drukknaði á heimleið úr Ólafs-
vik árið 1852. Eru þetta merkar ættir, sem rekja má til Daða
í Snóksdal, Stefáns Jónssonar biskups og Skáneyjar-Lassa, þ°
að hér skuli ekki farið frekar út í þá sálma.
Kona Teits á Klukkufelli var Karitas Þorgilsdóttir bónda í
Bæ í Súgandafirði, Erlendssonar bónda sama stað, Þorgilssonar.
Móðir Karitasar var Margrét Jónsdóttir prests, er síðast þjónaði
ögurþingum, Sigurðssonar (dáinn 1781). Karitas andaðist á
Sviðnum 16. júní 1862, 74 ára að aldri.
Kona Ólafs Teitssonar í Sviðnum var Björg dóttir Eyjólfs
hreppstjóra og dannbrogsmanns í Svefneyjum. Björg fæddist i
Svefneyjum 1. apríl 1815 og giftist Ólafi 10. dezember 1838.
Hún andaðist í Sviðnum 12. marz 1899 og þótti verið hafa hinn
mesti skörungur og merkiskona, sem hún átti kyn til. Eyjólfui'
faðir hennar í Svefneyjum var sonur Einars bónda þar, Svein-
bjarnarsonar bónda í Hvallátrum og þótti einn mestur höfðingi
meðal bænda á Breiðafirði um sína daga, bæði sakir atorku
og útvega, og ekki siður vegna stórmennsku og rausnar. Hann
var að jafnaði kallaður Eyjólfur Eyjajarl þar vestur. Hóf hann
búskap í Svefneyjum eftir föður sinn og bjó þar við mikla rausn
til dauðadags 1865. Hann var þingmaður Barðstrendinga fra
1845—1849. Kvæntur var hann Guðrúnu Jóhannsdóttur prests
að Brjánslæk og síðar að Garpsdal (dáinn 1822), Bergsveins-
sonar prests að Stað í Grunnavík (1755—62), Hafliðasonar
prests í Hrepphólum (1735—62), en kona Bergsveins að Stað