Eimreiðin


Eimreiðin - 01.07.1954, Síða 79

Eimreiðin - 01.07.1954, Síða 79
LEIKLISTIN Þýzk nútímaleiklist. Nýlega barst Eimreiðinni frá þýzka sendiráðinu á íslandi bók um þýzka nútímaleiklist, sem út kom á forlag Bruckmanns í Múnchen fyrir skömmu, og er eftir Hanns Braun. Bókin, sem er með fjölda mynda, greinir ítarlega frá endurreisn leiklist- arinnar í Þýzkalandi eftir síð- ustu heimsstyrjöld. Leiklistin hefur jafnan verið í hávegum höfð meðal Þjóð- verja, enda hafa margir ágæt- ustu leikritahöfundar, allt frá dögum Lessings, Goethes og Schillers, verið þýzkir. í öng- þveiti eftirstríðsáranna beið leiklistin eðlilega hnekki, og sum leikhúsanna í þýzkum borgum hrundu í rústir í loftárásum. En nú hefur leiklistin rétt við aftur. Leikhúsin eru endurreist flest, sem fallið höfðu, og allt er smámsaman að komast í samt lag á því sviði sem öðrum í vesturþýzka lýðveldinu. Af erlendum sjónleikjum, sem sýndir hafa verið í Þýzkalandi undanfarin sex til átta ár, hafa mestum vinsældum náð tveir eftir Thornton Wilde, „Borgin okkar“, sem sýndur var í Mún- chen undir leikstjórn Erich Engels, og „The Skin of Our Teeth“ eftir sama höfund. Enn- fremur „Mýs og menn“ eftir John Steinbeck, „Sölumaður deyr“ eftir Arthur Miller og .,Glass Menagerie" eftir Tennes- see Williams. Af léttari leikjum erlendum má nefna „Voice of the Turtle“ (Rödd turtildúfunn- ar) eftir Van Drieten og „The Women“ (Konurnar) eftir Clare Boothe Luce. Af öðrum erlend- um leikritahöfundum, sem unnið hafa sér vinsældir í Þýzkalandi fyrir sjónleiki sína, má nefna Saroyan, Elmer Rice, Eugene O’Neill og Lavery, ennfremur James M. Barry, Christopher Fry og T. S. Eliot og frönsku höfundana Jean Anouilh, Albert Camus, Jean Paul Sartre, Jean Girandoux og Paul Claudel. Auk leikrita eftir þau bandarísk, brezk og frönsk skáld, sem þeg- ar hafa verið nefnd, svo og fræg klassisk leikrit ýmsra þjóða, ber að nefna tvö leikrit eftir tvö spönsk nútímaskáld: „Tré deyja upprétt" (Baume sterben auf- recht) eftir Federigo Garcia Lorca, sem sýnt hefur verið í Stuttgart við mikla aðsókn, og „Konan í dögun“ (Die Frau im Morgengrau) eftir Alejandro Casova, sem sýnt var í Múnchen. Annað leikrit eftir þennan höf- und, sem nefnist „Dona Rosita“, var og sýnt í Múnchen og síðan valið til sýningar á Leiklistar- hátíðinni í Zúrich 1950, sem dæmi þýzkrar leiklistar eins og hún kemst hæst. Af þýzkum leikritahöfundum, sem vakið hafa eftirtekt fyrir leikrit sín nýlega, ber fyrstan að nefna Carl Zuckmayer fyrir sjónleikinn „Hershöfðingi fjand-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.