Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1965, Page 46

Eimreiðin - 01.09.1965, Page 46
242 EIMREIÐIN breidd landsins er 1050 kílómetrar. Ekkert land teygir sig lengra í norður en Grænland. Nyrsti oddi þess, Morris Jessup-höfðinn er á 83. gráðu og 39. mínútu norðlægrar breiddar en syðsti oddinn, Hvarf, er á 59. gráðu og 46. mínútu norðlægrar breiddar, eða nokkru sunnar en Osló. Strönd Grænlands er mjög vogskorin og er talið, að strandlengja þess sé tæplega 40.000 kílómetrar, en það samsvarar ummáli jarðar um miðbaug. Landið er mestallt hulið ísi, nema mjó ræma við ströndina. Gæði þessa lands voru, og eru, gnægð veiðidýra í sjó og á landi. Þegar norrænir menn setjast að á Grænlandi hefur þar verið byggð í tvö þúsund ár að minnsta kosti, og seinustu rannsóknh' benda til þess, að byggð hafi komið þar allmiklu fyrr, eða um 3000 f. Kr. Það fólk, sem þá byggði Grænland, var í engu frá- brugðið því fólki, sem þar býr enn, og menning þess og tunga hefur sennilega í engu verið frábrugðin menningu Eskimóa fraffl til vorra daga. Þessi forna menning er enn lifandi þáttur í lífi sumra íbúa Grænlands þótt hún sé víðast liðin undir lok, og merki hennar sjást víða. Fornleifafræðingar telja, að fyrstu örugg merki um mannabyggð á Grænlandi séu frá því um 2000 f. Kr., og jafnvel þúsund áruffl eldri. Elztu minjarnar finnast, eins og vænta mátti, á Norður- Grænlandi, í grennd við Thule. Þar er aðeins mjótt sund að fara yfir á íshafseyjar Kanada, og auðveldar leiðir þar að vetrinum- Leið fólksins til Grænlands hefur legið frá Alaska og íshafsströnd Kanada, yfir Thule og þaðan suður með ströndum landsins, bæði að vestanverðu og austan. Fyrstu íbúar landsins stunduðu hrein- dýra- og sauðnautaveiðar, og vera má, að þeir hafi elt hjarðirnar lengra og lengra í austur, þar til ekki varð lengra komizt. Þeir stunduðu einnig hval- og selveiðar, en ekki í eins ríkum mæli og síðar varð. Fornleifafræðingar telja sig geta greint mörg menningar- skeið á Grænlandi, en þau verða hér ekki rakin nema að litlu leyti- Nýir straumar innflytjenda komu alltaf við og við frá Kanada, og fluttu þeir með sér ný tæki og nýjar veiðiaðferðir. Þeir, sem fyrir voru, lærðu af hinum nýkomnu, og aðkomumenn lærðu af fyrri íbúum. Stundum er þó engu líkara en að mjög lítið samband hafi verið milli hinna einstöku hópa og menningin þróazt á ólíkan hátt á hinum ýmsu svæðum. Allir hópamir stunda þó sams konar veiðar. Hreindýrin voru alltaf mikilvægur liður í efnahagslífinu, og eins sauðnautin fyrst í stað. Hvalur og selur voru einnig veiddir, en
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.