Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1965, Blaðsíða 78

Eimreiðin - 01.09.1965, Blaðsíða 78
L" Það mun hafa verið 1 síðasta leikhússpjalli mínu, sem ég gat þess að leiklistin hefði tekið mikinn fjörsprett að undanförnu; meira leikið en nokkru sinni fyrr og yfir- leitt betur. Bæði Þjóðleikhúsið og Leikfélagið halda þessum fjör- spretti enn, þó að ekki verði sagt að stöðugt sé farið á kostum. Gæt- ir þó skemmtilegra tilþrifa hjá báð- um öðruhverju og þá fyrirgefst lullið og brokkið. Að mínum dómi hefur Leikfélaginu tekizt betur val erlendra leikrita að undanförnu en Þjóðleikhúsinu. Mér finnst að þeir í Þjóðleikhúsinu leiti um of til fanga vestur um haf; þó að banda- rískir leikritahöfundar kunni óneit- anlega vel til verks og hafi gagn- gera þekkingu á allri sviðstækni, gerast þeir nú leiðinlega hver öðr- um líkir, jafnt í vali viðfangsefna og meðferð þeirra. Má vel vera að einhverjum þyki ég taka helzt til djúpt í árinni, þegar ég tel að flest nýrri verk þeirra séu lítið annað en uppsuða úr snilldarverk- um Eugen O’Neil í potti Strind- bergs, útþynnt með nýtízku, banda- rískri sálkönnunarvæmni. Lætur að líkum að það geti aldrei orðið bragðmikil súpa eða saðsöm, og breytir þar lítið um þó að laumað sé lánsnöglum frá Ibsen gamla í gutlið. Þeir í Leikfélaginu leita skemmra til fanga — sé annars unnt að tala um langt og skammt á þess- ari öld þotuflugs og geimferða — og verður að minnsta kosti eins vel til og betur. Einhverra hluta vegna eiga evrópskir leikritahöfundar, þeir sem nú bera hæst, betur við mann en þeir, sem kallast jafnokar þeirra vestan hafs. Eins og er. Nóg um það. Frá því er ég reit þetta síðasta leikhússpjall mitt, hef- ur það gerst merkilegast á sviði Þjóðleikhússins, að Jrar var fluttur nýr söngvaleikur eftir íslenzka höf- unda, „Járnhausinn“, eftir bræður, Jónas og Jón Múla Arna- syni. Þetta er bráðskemmtilegur söngvaleikur, Jrrunginn græzku- lausu gamni og hlýrri kýmni, sem við eigum yfirleitt svo lítið af og kunnum helzt ekki að meta. Þeir bræður sækja efnið í sjávarþorp úti á landi; leikurinn gerist allur a einu og sama síldarplani undir veggjum kirkjunnar og félagsheun- ilisins. Og aðalpersónurnar eru i stíl við það — nýríkur útgerðar-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.