Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1965, Síða 88

Eimreiðin - 01.09.1965, Síða 88
284 EIMREIÐIN þá, sem útskrifuðust úr Kennaraskóla íslands árin 1962 og 1963. Fyrsta hefti kennaratals kom út 1956, annað 1957 og hið þriðja 1958, og skipa þau fyrra bindið. Það er samtals 480 blaðsíður og í því eru 2089 æviágrip. í síðara bindinu eru einnig þrjú hefti með 2095 æviágrip- um, og er það jafnt hinu fyrra að blaðsíðutölu. I áðurgreindum eftirmála segir Ol- afur Þ. Kristjánsson frá tildrögum og undirbúningi kennaratalsins, en þar getur hann þess meðal annars, að vet- urinn 1944—1945, þegar hann var rit- stjóri Menntamála, hafi hann birt þar skrá yfir starfandi barnakennara á öllu landinu. Síðar hafi Ingimar Jó- hannesson kennari, nú starfsmaður í Fræðslumálaskrifstofunni, haft orð á því, að þarflegt væri að taka saman æviágrip íslenzkra kennara, en þessi hugmynd hafi ekki náð lengra, fyrr en Vilbergur Júlíusson skólastjóri hafi tekið málið upp og fengið Nemenda- samband kennaraskólans til þess að skrifa Sambandi íslenzkra barnakenn- ara og Landssambandi framhaldsskóla- kennara, þar sem óskað var samstarfs þessara aðila um að fá samið og gefið út kennaratal. Þetta varð til Jress að skipuð var nefnd til Jress að vinna að Jtví að hrinda útgáfunni í framkvæmd, en í nefndinni voru Vilbergur Júlíusson, Guðmundur I Guðjónsson, Ingimar Jóhannesson og Ólafur Þ. Kristjáns- son. Síðan samdi nefndin við Prent- smiðjuna Odda um að gefa ritið út og réð Ólaf Þ. Kristjánsson til þess að liafa ritstjórn bókarinnar á hendi. Tekur Olafur það fram, að auk ágætr- ar samvinnu við samnefndarmenn sína og útgefanda hafi hann notið mikilvægrar aðstoðar og fyrirgreiðslu fjölmargra einstaklinga, svo og opin- berra stofnana, svo sem Fræðslumála- skrifstofunnar, Hagstofu íslands, Þjóð- skjalasafnsins, Landsbókasafnsins o g síðast en ekki sízt Þjóðminjasafnsins, sem lánað liafi niikið af ljósmyndum, og einnig hafi skrifstofa Alþingis hlaupið undir bagga á þessu sviði. Það má öllum Ijóst vera að verk sem þetta hefði verið torleyst, ef ekki hefðu margir aðilar lagt þar hönd á plóginn. Hitt fer þó ekki milli mála, að Jryngst hefur verkefnið hvilt á herðum rit- stjórans, og má J>að út af fyrir sig teljast afrek að ljúka þessu mikla verki á ekki lengri tíma en raun ber vitni, samhliða umfangsmiklu skóla- stjórnarstarfi. Kennaratalið er stærsta og yfirgrips- mesta stéttartal, sem komið liefur út hér á landi ,enda er kennarastéttin orðin fjölmenn og ritið tekur til rúm- lega 160 ára tímabils. Höfundur dreg- ur ekki fjöður yfir það, að villur kunni að hafa slæðzt inn í ritið á stöku stað, enda heimildir ekki ávallt nægilega traustar, og einnig vanti æviágrtp nokkurra manna, sem þar hafi átt að vera. En úr Jressu er nokkuð bætt með leiðréttingum og viðauka í síðasta liefti kennaratalsins. Það lilýtur einatt að vera vandkvæð- um bundið að ákveða riti sem þessu ákveðinn ramma, bæði að ])ví er tekur til æviágripanna sjálfra, — hversu ítar- leg þau eigi að vera, og eins að hinu leytinu, hverja eigi að taka með og hverja ekki. Það kemur líka fram ] eftirmálanum, að takmörkin mill’ kennara og annarra stétta hafi ekki ætíð verið svo glögg, að auðsýnt vasri hvar markalínurnar skyldu dregnar. Raunar virðist í fljótu bragði sem stundum hafi verið farið út fyrir hin£l eiginlegu kennarastétt, enda J>ótt all" ir, sem getið er í kennaratalinu haf' einhvern tíma stundað kennarastörf,
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104

x

Eimreiðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.