Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1969, Side 23

Eimreiðin - 01.05.1969, Side 23
háskói.abréf frá laganema 93 Háskóli íslands. Þetta er akademían. Ég reyndi að réttlæta fyrir mér samsömun manna við ópersónulega aðila útfrá samfélagslegri þörf slíkrar aðlögunar. En mér tókst ekki að þagga niður í lijáróma tón, sem fylgdi þeirri réttlætingu. Meira um reynslu mína af námsfyrirkomulaginu: Ég fer í tíma, fylgist með því, sem fram fer, veit að ég hlýt að keppa að marki, sem heitir fyrrihluti, fyrst ég vil verða lögfræðingur. Upp- götva, að fram muni fara kennsla í annarri grein, sem heiti þetta eða liitt, og tíminn er tiltekinn; mér beri að afla mér þekkingar á því sviði líka til að markinu verði náð. Þannig vex verkefnið. Loks er ég viss orðinn, að hvergi fari fram innan háskólans kennsla í fyrri hluta grein án minnar vitundar. Ég hef tæmt námsmöguleika líðandi stund- ar. Ef ég nú fylgist með næ ég yfirferð hvað lýkur. En hvenær? Ég veit að yfirferð tekur þrjú og hálft ár; það hef ég heyrt á skotspónum. En hvar er ég staddur í yfirferðinni? Byrjaði sá þriðjungur hennar, sem þú sérð um, við þá bók, sem ég er nú að lesa, eða er verið að ljúka henni með lestri þessarar bókar? Er hún eilíf hringrás, sem byrjar hvergi og endar aldrei? Þú munt e. t. v. spyrja, hvers vegna ég leiti ekki til hinna, sem grónari eru orðnir í faginu? Þess konar upplýsingar hefur mér lærst að meta að engu. Svörin eru mér jafn óskiljanleg og þau væru á framandi tungumáli.

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.