Eimreiðin - 01.05.1969, Page 55
LYRE OG SLAGTOJ
Ljóð 75 danskra skálda
Á síðastliðnu vori átti danska rithöfundafélagið 75 ára afmæli,
en það var stofnað árið 1894. Var afmælisins minnzt með ýmsum
hætti í Danmörku, meðal annars tveggja daga veglegum hátíðahöld-
um, sem fram fóru í Kaupmannahöfn 17. og 18. maí og voru blöð,
útvarp og sjónvarp hvarvetna á varðbergi og greindu ýtarlega frá
þessum tímamótum í sögu félagsins. Til afmælishátíðahaldanna
var boðið mörgum gestum, þar á meðal fulltrúum frá rithöfunda-
samtökum allra hinna Norðurlandanna, en um sama leyti var einn-
ig haldinn aukafundur í Norrræna rithöfundaráðinu, þar sem meðal
annars var ákveðið, að næsti ársfundur ráðsins yrði haldinn á ís-
landi vorið 1970.
Fremst á myndinni jrá vinstri: Tage la Cour og Hanna Kaujmann er önnuðust
ritstjórn bókarinnar ,JLyre og Slagt0j,“ ennfremur scenski rithöfundurinn Per
Olov Sundman og Eiler Jórgensen. — Myndin var tekin i samkvœmi á Royal.