Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1969, Side 58

Eimreiðin - 01.05.1969, Side 58
Richard Beck KVEÐJUÁVARP flutt í Ríkisútvarpið 31. ágúst Kæru landar, frændur og vinir. Nú er komið að kveðjustund. Vikurnar tíu, sem við hjónin höf- um átt hér heirna á ættjörðinni í vor og sumar, eru nú að enda og þær hafa verið alltof fljótar að líða, líkt og fagurt ljóð og lag, sem hrífa hlustandann og lýkur miklu fyrr en hann hefði kosið, en lifa þó áfram í huga hans og hita hon- um um lijarta. Við hjónin erum nú búsett, landfræðilega talað í mikilli fjar- lægð frá ættj arðarströndum. En hvar, sem við eigum ævidvöl, er alltaf stutt til íslands. Frá heim- ili okkar í Victoriu British Colum- bía, sem er aðeins spölkorn frá sjávarströndinni, sjáum við bæði út á sjóinn og snæviþakin fjöll rísa í tign sinni við himinn yfir á meginlandinu í Washingtonríki í Bandaríkjunum. í þessari út- sýn, sem við höfum daglega íyrir augum, rís ættjörðin okkar úr hafi sem draumsýn. Sú draumsýn hefir orðið okkur að fegurri veruleika með hverjum degi í þessari ógleym- anlegu heimferð okkar. Já, það hefir verið yndislegt að hafa dval- ið hér heima á ættjörðinni ein- mitt á þeim tíma ársins, þegar hér skín nóttlaus voraldar veröld, þar sem víðsýnið skín, eins og Stephan G. Stephansson orðar það fagur- lega í alkunnu kvæði sínu. Á flugferðum okkar yfir landið, og öðrum ferðum okkar í alla landshluta, höfum við séð að nýju, einstæða, fjölbreytta og svipmikla fegurð íslands, notið hennar í ríkum mæli, og fundið það æ betur og betur, hve sterkum böndum við erum tengd þessu fagra landi. En hinu nána og lífræna sambandi milli íslands og barna þess hefur Gunnar skáld Gunnarsson lýst snilldarlega og á eftirminnilegan hátt í ritgerð sinni „Landið okk- ar“, þar sem hann segir meðal annars: „Fyrir okkur, sem hér erum al- in, á landið engan sinn líka. Sál okkar er steypt í móti dala og fjalla, hvort heldur okkur er það ljóst eða hulið. Lund okkar er skil-

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.