Eimreiðin - 01.05.1969, Qupperneq 60
130
EIMREIÐIN
lands og þjóðkirkju eigum við
mikla þakkarskuld að gjalda, og
sérstaklega er ég þakklátur þeim
prestum, víðs vegar um landið,
sem sýnt hafa mér þann sóma og
þá tiltrú að óska þess, að ég flytti
ræður eða ávörp við guðsþjónust-
ur í kirkjum þeirra; þær stundir
hafa orðið mér mjög áhrifaríkar
og minnisstæðar að sama skapi.
Menntastofnunum og félagsheild-
um, svo sem Góðtemplarareglunni,
sjómannadagsráðinu í Reykjavík,
Þjóðræknisfélögunum hér heima,
og samtökum íslenzkra kennara,
vottum við innilega þökk okkar,
sem og þjóðhátíðarnefnd Reykja-
víkur. Ættmennum okkar og vin-
um um landið allt eigum við þá
þökk að gjalda fyrir ástúð þeirra
og höfðingsskap, að við fáum það
aldrei fullmetið né fullþakkað. Já,
við þökkum þjóðinni allri fyrir þá
hjartahlýju, sem hún hefur um-
val’ið okkur í þessari heimferð okk-
ar, og mun hita okkur um hjarta-
rætur til daganna enda.
í ferð okkar hér heima höfum
við hjónin alltaf verið að skila
kveðjum frá íslendingum vestan
hafs til ættingja og vina hér á
ættlandinu, og við förum með
fangið jafnfullt af kveðjum héð-
an vestur yfir álana til ættmenna
og vinafólks þeim megin hafsins.
Þeim kveðjum munum við skila
eins fljótt og víða og ástæður leyfa.
En gott hlutverk er það að mega
með þeim hætti vera boðberi rækt-
arhugans milli íslendinga yfir hið
breiða djúp.
Stephan G. Stephansson kemst
svo að orði í einu ágætis kvæða
sinna:
Ef að vængir þínir taka að
þyngjast,
þreyttir af að fljúga í vesturátt,
hverf þú heim, og þú munt aftur
yngjast
orku, er lyftir hverri fjöður
hátt.
Sannleikur þessara orða hefir
með eftirminnilegum hætti orðið
að veruleika í þessari ferð til ætt-
landsins.
Við erum svo rík og gæfusöm að
eiga heima — athvarf beggja megin
hafsins. Og við förum héðan heim-
an heim, hlaðin nýrri orku, með
dýpri skilningi á tengslum okkar
við þetta stórbrotna og fagra land,
og við J^essa þjóð, sem við erum
og verðum alltaf hluti af, ætternis-
lega og menningarlega, og eigum
ómetanlega skuld að gjalda fyrir
arfinn þaðan. Og með hverri nýrri
heimferð verður okkur bæði land-
ið og þjóðin hjartfólgnari.
Við biðjum ættjörðinni, — fold-
inni með blíða brá og bláum tindi
fjalla — ríkulegs velfarnaðar í
hjartaheitum orðurn Jónasar Hall-
grímssonar:
„Drjúpi hana blessun Drottins á
um daga heimsins alla.“
Verið þið öll blessuð og sæl.