Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1969, Page 66

Eimreiðin - 01.05.1969, Page 66
136 EIMREIÐIN rætur þeirra löngu hlíða, sem ná upp á Harðangursöræfin. Hann er bóndasonur að uppruna, og hefur ættin setið óðal á þessum slóð- um þrjár aldir. Er fæðingarstaður Vesaas snertuspöl frá æskuheim- ili Vinje skálds, sem gerði byggðir þessar kunnar um gervallan Nor- eg og víða erlendis með ljóðum sínum á öldinni, er leið. Tarjei Vesaas á til gáfufólks að telja í báðar ættir, og er hann til dæmis náskyldur skáldkonunni Áslaugu Vaa og bróður hennar, mynd- höggvaranum Dyre Vaa, svo og tónskáldinu Eyvindi Groven. Ves- aas stundaði tvítugur nám við lýðskólann að Voss á Hörðalandi hjá Lars Eskeland, föðurbróður Ivars Eskeland. Hann gerðist ungur rithöfundur og kvaddi sér hljóðs 1923 með skáldsögunni Menne- skebonn. Frægur varð hann upp úr 1930 með skáldsagnaflokkun- um um Klas Dyregodt og Per Bufast, en þokaðist í fylkingarbrjóst norskra rithöfunda á árum síðari heimsstyrjaldarinnar með skáld- sögunum Kimen, Huset i mörkret og Bleikeplassen. Hefur Tarjei Vesaas síðan verið óumdeildur arftaki Knúts Hamsun og Ólafs Duun sem frumlegasti og listrænasti skáldsagnahöfundur norð- manna. Af seinni skáldsögum hans nefni ég sér í lagi Fuglane, Brannen og Is-slottet, en fyrir þá síðast nefndu fékk hann bók- menntaverðlaun norðurlandaráðs 1964. Hannes skáld Pétursson hefur þýtt Is-slottet á íslenzku undir heitinu Klakahöllin, og mun óþarft að kynna hana frekar. Sagnaskáldskapur Tarjei Vesaas virðist í fljótu bragði staðbund- inn við átthaga hans í Suðaustur-Noregi, en því fer samt fjarri, að hann hafi markað sér þröngan bás. Hann er þvert á móti heims- borgari í skoðun og viðhorfi og næsta tilraunagjam í sagnagerð- inni. Úrslitum ræður þó stílsnilli hans, sem ég ætla einstaka. Sagt hefur verið um Tarjei Vesaas, að hann sé meistari í orðagaldri. Hygg ég þá ályktun nærri lagi, og eru mér þá einkum í huga skáldsög- urnar Kimen, Huset i mörket, Bleikeplassen og Is-slottet. Vesaas reynir oft að gera smátt stórt, kannski af því að honum finnist iðu- lega stórt reynast smátt. List hans er fólgin í þessari vandasömu en djarfmannlegu aðferð, og málfar hans lyftir frásögninni jafnan í æðra veldi hins myndræna og margræða, hvort heldur hann lýsir sálarlífi, fólki, viðburðum eða umhverfi. Hann er á sína vísu snjallt skáld, en hefur einnig ríkan boðskap að flytja. Veldur miklu um það afstaða hans til mannlífsins á jörðunni á þeim örlagatímum, sem líðandi stund hlýtur að teljast hverju sinni. Eigi að síður er Tarjei Vesaas næmur á unað og fegurð, hamingju og farsæld, en

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.