Eimreiðin - 01.05.1969, Side 78
148
EIMREIÐIN
kynningu á verkum höfundanna, stundum í samstarfi við skóla-
útvarp og skólasjónvarp. Höfundamiðstöð Rithöfundasambandsins
væri til þess kjörin að annast fyrirgreiðslu í slíkum tilvikum og ætti
sem tengiliður milli skóla og höfunda að njóta fjárstuðnings frá ríki,
Reykjavíkurborg, bæja- og sveitafélögum, sem ákvæðu fjárveitingu í
þessu skyni árlega eins og til annarra menntamála.
Eðlilegt væri, að Höfundamiðstöðin yrði jafnframt upplýsinga-
miðstöð, sem miðlaði fréttum um störf rithöfunda og alls konar
bókmenntalegt efni til blaða, útvarps, sjónvarps, félaga og stofn-
ana.
6.
Bókmenntaverðlaun æðri skóla.
í Háskóla íslands, menntaskólunum, Verzlunarskólanum, Kenn-
araskólanum er jafnan nokkur hópur bókmenntasinnaðra ung-
menna, og allur þorri nemenda í þessum skólum les mjög mikið
íslenzkan samtímaskáldskap. Áhugamenn urn bókmenntir hafa með
sér samtök í flestum þessara skóla, ef ekki öllum. Menntamálaráðu-
neytið gæti mjög liðsinnt þessu unga áhugaliði og eflt það til dáða,
t. d. með því að leggja fram nokkra f járhæð til bókmenntaverðlauna,
sem nemendur æðri skóla úthlutuðu árlega íslenzkum höfundi
(einum eða fleirum) að undangenginni atkvæðagreiðslu eða eftir
öðrum reglum, sem þar um yrðu settar.
7.
Ungir höfundar njóti aðildar að námslánakerfinu.
Hundruð íslenzkra ungmenna hljóta árlega styrki eða hagstæð
lán af opinberu fé til skólagöngu utanlands og innan. Þetta nær
einnig til listafólks, sem getur búið sig undir starf sitt í skólum (t.
d. í tónlista- eða myndlistarskólum). Sambærilegur styrkur við
unga rithöfunda er óþekktur. Ekkert tillit er tekið til, að köllun
þeirra og starf eru þess eðlis, að venjulegt skólanám kemur þeim
að takmörkuðu liði. Þeir eru einfaldlega settir utangarðs.
Rithöfundasambandið leggur ríka áherzlu á, að viðurkenndur
sé réttur ungra höfunda til jafns við námsfólk í þessu efni. Væri
eðlilegast, að Rithöfundasambandinu yrði falið að útluta tiltekn-
um hluta námslánafjár sem styrkjum eða lánum til ungra rithöf-
unda með hliðstæðum skilmálum og skólafólk verður að hlíta.