Eimreiðin


Eimreiðin - 01.05.1969, Side 88

Eimreiðin - 01.05.1969, Side 88
158 EIMREIÐIN en tekur á sig ákveðið form og verður auðskildara við nánari kynni. Viðtöl þessi kynna lesend- um ýmsar hliðar á Kjan'al, veita innsýn í hugarheim hans, birta sér- kenni hans og kenjar, enda segir einn af vinum hans, Sigurður Benediktsson, í formála að bók- inni, að þetta sé raunsönnust mynd af Kjarval, sem enn hafi birtst á prenti. Það er því ekki ósennilegt, að síð- ar meir verði leitað til þessarar bókar sem heimildarrits um per- sónuleika og viðhorf þessa mikla og merka listamanns. Kjarvalskver er falleg bók, enda hefur ekkert verið til hennar spar- að í ytri búnaði, og í henni eru margar myndir af Kjarval bæði við störf og ýmis önnur tækifæri. I. K. Gunnar G. Schram: LÖGFRÆÐI- HANDBÓKIN. Meginatriði per- sónu-, sifja- og erfðaréttar, með skýringum fyrir almenning. — Bókaútgdfan Örn og Örlygur 1969. Eins og nafn og undirtitill bók- arinnar ber með sér er hér um að ræða hagnýta handbók fyrir al- menning um nokkrar greinir lög- fræðinnar, það er um persónu- rétt, sifjarétt og erfðarétt. Það verður að teljast mjög mikilvægt fyrir hvern einstakling, að kunna nokkur skil á þessum þrem þátt- um íslenzkrar löggjafar, þar eð ýmis vandamál er þessar greinir taka til, bera oft að höndum í mannlegum samskiptum og dag- legu lífi. Bókin skiptist í sex höfuðkafla, en hver einstakur kafli síðan í marga undirkafla. Fyrsti kaflinn fjallar um lögræði, annar um mannanöfn, þriðji um hjúskapar- mál, fjórði um ættleiðingu, fimmti um erfðarétt og sjötti um skipti dánarbúa. í formála fyrir bókinni segir höfundurinn, dr. Gunnar G. Schram, meðal annars, að bók- inni sé ætlað að veita svör við ýmsum þeim spurningum, sem oft heyrast fram bornar, þegar lög- skipti eru til umræðu, og veita hag- nýta fræðslu um ýmis höfuðatriði innan þess vettvangs, sem henni er markaður. Ekki verður betur séð, en þeim tilgangi, sem hér er lýst hafi verið náð með bókinni, því að jafnframt því sem höfundur rekur ýtarlega lagagreinar á þeim sviðum, sem bókin tekur til, er efnið fram sett á alþýðlegan og Ijósan hátt, þannig að öllum er aðgengilegt og auð- skilið. Lengstur er kaflinn, sem fjallar um hjúskaparmál. Þar segir meðal annars frá hjónavígsluskil- yrðum, ógildingu hjúskapar, skiln- aði að borði og sæng og lögskiln- aði. Rætt er um réttindi og skyldur hjóna, fjármál þeirra, réttarstöðu barna bæði skilgetinna og óskilget- inna, og loks er í tveim síðustu köflunum ýtarlega fjallað um erfðaréttinn, gerð erfðaskrá, skipti dánarbúa og fleira. Bókin er því handhægur leiðarvísir hverj- um þeim, sem afla vill sér stað- góðrar þekkingar á framangreind- um atriðum, enda mun hafa kom- ið til álita, að nota hana sem

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.