Eimreiðin - 01.05.1969, Síða 88
158
EIMREIÐIN
en tekur á sig ákveðið form og
verður auðskildara við nánari
kynni. Viðtöl þessi kynna lesend-
um ýmsar hliðar á Kjan'al, veita
innsýn í hugarheim hans, birta sér-
kenni hans og kenjar, enda segir
einn af vinum hans, Sigurður
Benediktsson, í formála að bók-
inni, að þetta sé raunsönnust mynd
af Kjarval, sem enn hafi birtst á
prenti.
Það er því ekki ósennilegt, að síð-
ar meir verði leitað til þessarar
bókar sem heimildarrits um per-
sónuleika og viðhorf þessa mikla
og merka listamanns.
Kjarvalskver er falleg bók, enda
hefur ekkert verið til hennar spar-
að í ytri búnaði, og í henni eru
margar myndir af Kjarval bæði við
störf og ýmis önnur tækifæri. I. K.
Gunnar G. Schram: LÖGFRÆÐI-
HANDBÓKIN. Meginatriði per-
sónu-, sifja- og erfðaréttar, með
skýringum fyrir almenning. —
Bókaútgdfan Örn og Örlygur 1969.
Eins og nafn og undirtitill bók-
arinnar ber með sér er hér um að
ræða hagnýta handbók fyrir al-
menning um nokkrar greinir lög-
fræðinnar, það er um persónu-
rétt, sifjarétt og erfðarétt. Það
verður að teljast mjög mikilvægt
fyrir hvern einstakling, að kunna
nokkur skil á þessum þrem þátt-
um íslenzkrar löggjafar, þar eð
ýmis vandamál er þessar greinir
taka til, bera oft að höndum í
mannlegum samskiptum og dag-
legu lífi.
Bókin skiptist í sex höfuðkafla,
en hver einstakur kafli síðan í
marga undirkafla. Fyrsti kaflinn
fjallar um lögræði, annar um
mannanöfn, þriðji um hjúskapar-
mál, fjórði um ættleiðingu, fimmti
um erfðarétt og sjötti um skipti
dánarbúa.
í formála fyrir bókinni segir
höfundurinn, dr. Gunnar G.
Schram, meðal annars, að bók-
inni sé ætlað að veita svör við
ýmsum þeim spurningum, sem oft
heyrast fram bornar, þegar lög-
skipti eru til umræðu, og veita hag-
nýta fræðslu um ýmis höfuðatriði
innan þess vettvangs, sem henni er
markaður.
Ekki verður betur séð, en þeim
tilgangi, sem hér er lýst hafi verið
náð með bókinni, því að jafnframt
því sem höfundur rekur ýtarlega
lagagreinar á þeim sviðum, sem
bókin tekur til, er efnið fram sett á
alþýðlegan og Ijósan hátt, þannig
að öllum er aðgengilegt og auð-
skilið. Lengstur er kaflinn, sem
fjallar um hjúskaparmál. Þar segir
meðal annars frá hjónavígsluskil-
yrðum, ógildingu hjúskapar, skiln-
aði að borði og sæng og lögskiln-
aði. Rætt er um réttindi og skyldur
hjóna, fjármál þeirra, réttarstöðu
barna bæði skilgetinna og óskilget-
inna, og loks er í tveim síðustu
köflunum ýtarlega fjallað um
erfðaréttinn, gerð erfðaskrá,
skipti dánarbúa og fleira. Bókin
er því handhægur leiðarvísir hverj-
um þeim, sem afla vill sér stað-
góðrar þekkingar á framangreind-
um atriðum, enda mun hafa kom-
ið til álita, að nota hana sem