Eimreiðin - 01.09.1971, Side 19
Kristmann
Gufimundsson skáld
Eftir
Guðmund Daníelsson
Hinn 23. október síðastliðinn
varð Kristmann Guðmundsson
skáld sjötugur. 1 því tilefni flutti
Guðmundur Daníelsson formaður
Félags íslenzkra rithöfunda erindi
í útvarpið um Kristmann og rit-
störf hans. Hefur Guðmundur góð-
fúslega leyft Eimreiðinni að birta
erindið og fer það hér á eftir:
Það hefur fallið í minn hlut, að flytja félaga okkar, Kristmanni Guð-
mundssyni skáldi, kveðju á sjötugsafmæli hans frá „Félagi íslenzkra
t'ithöfunda", en Kristmann er 'einn af stofnendum þess félags, og nú
sem stendur er ég formaður þess.
Lífsferill og listamannssaga Kristmanns Guðmundssonar er ævintýii,
sem að vísu hefur vakið eftirtekt og aðdáun víða um lieim, en mun þó í
ae ríkara mæli verða íslenzk eign, kjörgripur handa skáldum og bók-
menntafræðingum framtíðarinnar.
Þetta ævintýri verður ekki rakið að marki í Jaessu stutta ávarpi,
heldur aðeins stiklað á nokkrum staðreyndum, ekki einu sinni hirt um
að rifja þær upp í réttri röð. — Afrekaskrá Kristmanns Guðmundssonar
á leikvangi bókmenntanna er orðin löng, — afrek lians, sum hver, auk