Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.02.1946, Qupperneq 14

Ægir - 01.02.1946, Qupperneq 14
36 Æ G I R framleiðslu á málningu. Fyrirtæki þetta hef- ur lofað að taka sýnishorn af íslenzku lýsi og fiskolíu til tilraunavinnslu og skila af- urðunum liingað aftur. Hefur rannsóknar- stofan þegar sent 400 kg af karfabúklýsi í þessum tilgangi, en síðan verður væntan- lega sent svipað magn, bæði af þorskalýsi, stearini og síldarolíu. Hér hafa aðeins verið talin upp lielztu verkefni þau, sem unnið liefur verið að á rannsóknarstofu Fiskifélagsins á árinu 1945, og gefur það að sjálfsögðu aðeins ófullkomna mynd af þeirri þýðingarmiklu starfsemi, sem þar er rekin. ítarlegri grein- argerð um starfsemi rannsóknarstofunnar Ijirtist í Ársskýrslu Fiskifélagsins, en nú mun væntanleg skýrsla um starfsemina á árunum 1944 og 1945. Fiskideild Atvinnudeildar háskólans bættust nýir starfskraftar á árinu og gat þar af leiðandi, ekki aðeins lialdið áfram þeim rannsóknum, sem Inin liefur haft með höndum hingað til, heldur nokkuð fært úr kvíarnar. Þó er aðstaða deildarinnar enn erl'ið á ýmsum sviðum, og einkum veldur það miklum erfiðleikum, að ekki skuli enn hafa fengizt fiskirannsóknaskip, sem er al- veg óhjákvæmilegt tæki, ef von á að vera til þess, að rannsóknirnar beri þann ávöxt, sem ætlazt er til. Á árinu var liægt að taka upp rannsóknir í Faxaflóa að nýju, og voru leigðir til þess togbátar. Var aðstaða öll miðlungi góð, en þó voru farnar 4 rannsóknarferðir í flóann. Kom það upp úr kafinu, að fiskur var miklu minni en búast liefði mátt við eftir þá hvíld, sem ætla mátti að flóinn hefið nol- ið í stríðinu, jninni en fyrir stríð. Voru at- huganir þessar einn liður í því starfi, sem liafið var fyrir styrjöldina, að fá Faxaflóa l'riðaðan fyrir botnvörpuveiðarfærum, og hófust nú aftur viðræður á alþjóðaráðstefn- um um þessi mál. Standa nú vonir til þess, að áður en langt um líður fáist viðurkenn- ing þeirra aðila, sem hér eiga lilut að máli, l'yrir friðun Faxaflóa, og væru þá stórt spor stigið. Á árinu var mælt yfir 60 þús. af þorski víðs vegar um landið og er það meira en verið hefur nokkurt annað ár. Safnað var um 9500 kvörnum til aldursákvarðana og þó enn hafi eigi unnizt timi til þess að vinna úr þeim gögnum nema að nokkru leyti, er þó liægt að segja með vissu, að þorskstofninn stendur með allmiklum blóma, enda þótt ungur fiskur sé lilt áberandi sem slendur. Það, sem einkum hefur gerzt, er það, að fiskur gengur nú í stórum stíl hing- að frá Grænlandi, enda er það auðséð við athugun kvarnanna, að fiskur sá, sem nú veiðist, er l'lestur kominn úr mjög köldum sjó, þ. e. frá Grænlandsmiðum. Göngur þorsksins hal'a nú aftur mjög sótt i gamla liorfið, og virðist svo sem þeim sé eigi ólíkl luittað og á árunum eftir 1930. Haldi þró- unin áfram eins og hún hefur gert undan- l'arin þrjú ár, eru allar líkur til, að sumar- veiði við Vestfirði, Norður- og Austurland l'ærist í aukana. Gert er ráð fyrir allmikilli aukningu á þorskrannsóknunum eftir þá erfiðleika, sem styrjöldin liefur valdið, en auk þess er þýðingarmikið að geta fylgzt með því, sem gerist i sjónum við Vestur- Grænland, en rannsóknir hefjast þar á sumri komanda. Af ýsu voru mæld um 43 þús., en kvarnir til aldursrannsókna teknar úr um 3500. Ýsustofninn er eitthvað hetri nú en hann var fyrir ófriðinn, en hefur þó aukizt minna en vonir stóðu til. Fyrir styrjöldina var hann orðinn mjög slitinn og sú litla „hvild“, sem hann liefur fengið, hefur ekki reynzt nándar nærri fullnægjandi til þess að bæta hann að verulegum mun. Auk þess liafa ýiusir botnfiskar aðrir ver- ið rannsakaðir, einkum skarkoli, ufsi og lúða. Af skarkola voru mæld um 3500 og kvarnir teknar úr 850. Af ufsa voru mæld 1800 og 300 kvarnir teknar, og kvörnum var safnað úr 1050 lúðum. Hafa þessar rann- sóknar aðallega verið gerðar vegna Faxa- flóarannsóknanna. Um sumarið, á meðan á síldveiðum slóð, var haldið áfram rannsóknum á síld. Mælt var um 4000 af síld og reyndist meðallengd- in 35,35 cm, eða meiri en nokkru sinni fyrr.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.