Ægir

Volume

Ægir - 01.02.1946, Page 20

Ægir - 01.02.1946, Page 20
42 Æ G 1 R Tafla X. Tala flskiskipa og fiskimanna í Norðlendingafjórðungi í hverjum manuði 1945 og 1944. . Línu- gufuskip Mótorbátar yfir 12 rl. Mótorbátar undir 12 rl. Opnir vélbátar Ára- bátar Samtals 1945 Samtals 1944 Tala skipa Tala skipv. Tala skipa Tala skipv. Tala skipa Tala skipv. Tala skipa Tala skipv. Tala skipa JH .i- H iS Tala skipa Tala skipv. Tala skipa Tala skipv. Janúar 2 22 12 108 1 ’ 8 3 15 » » 18 153 » » Kebrúar 2 22 14 126 1 8 3 16 » » 20 172 18 106 Marz 1 11 19 163 8 49 16 82 » » 44 305 99 498 April 2 22 30 252 14 90 58 202 » » 104 566 165 746 Maí 1 11 28 219 15 93 69 236 6 ii 119 570 198 932 Júní » » 24 183 15 83 101 282 2 3 142 551 144 694 Júlí 3 58 52 670 12 56 48 141 » » 115 925 150 919 Ágúst 3 57 45 640 8 38 54 123 1 1 111 859 152 932 September 2 26 28 197 9 40 61 146 1 2 101 411 132 866 Október » » 17 128 9 48 82 224 3 8 111 408 74 256 N'óvember » » 8 69 1 5 18 46 2 4 29 124 79 257 Desember » » » » » » » » » » » » » » lega verið lítið stundaðar af bátum úr Vest- firðingafjórðungi, en að þessu sinni fóru allmargir bátar á reknetjaveiðar. Flestir voru reknetjabátarnir í ágústmán- uði, 18, en nokkrir þeirra stunduðu veiðar allt fram í október. Árið áður hafði tala reknetjabátanna verið liæst 8, í ágústmán. Hin stærri mótorskip í Vestfirðingafjórð- ungi stunduðu flest isfiskflutninga að þessu sinni og var það svipað og verið hefur und- anfarin ár. Voru þau aðallega í þessari út- gerð á vetrarvertíðinni. Aflabrögð í Vestfirðingafjórðungi voru æði misjöfn eftir stöðum og árstíðum, en munu þó hafa verið yfirleitt talin heldur góð. Framan af vetrarvertíðinni voru gæftir yfirleitt góðar og afli góður þann tíma og einnig í marzmánuði, en eftir það dró held- ur úr aflanum víðast hvar. Um vorið var sums staðar góður afli en langsótt. Um sumarið var aflinn æði misjafn, en sums staðar allgóður, einkurn á handfæri. Beitu- skortur hamlaði þó nokkuð sjósókn. Um haustið og framan af vetri voru gæftir stirð- ar og afli yfirleitt heldur tregur. e. Norðlendingafjórðungur. Engin botnvörpuskip voru gerð út úr Norðlendingafjórðungi á árinu og aðeins örfá línugufuskip, sem gerð voru út framan af árinu og lil sildveiða um sumarið. Voru þau flest aðeins 3, í júli og ágúst (sbr. töflu X). Þátttaka mótorbála yfir 12 rúml. var lítil framan af árinu, enda fara þá margir þeirra til veiða á Suðurlandi. Mest var útgerð þess- ara skipa um sumarið á síldveiðum og urðu þau flest 52 í júlí, en fækkaði mjög aftur, þegar síldveiðum lauk. Var tala skipa af þessari stærð, sem gerð voru út frá Norð- lendingafjórðungi á árinu, svipuð því sem verið hafði árið áður. Þálttaka mótorbáta undir 12 rúml. var enn minni en árið áður og liefur farið minnkandi undanfarin ár, eins og raun hef- ur orðið á annars staðar á landinu. Urðu þeir flestir 15 í maí og júní, enda er aðal- útgerðartími þeirra seinni hluta vetrar og á vorin. Arið áður urðu þeir flestir í júni, 29 að tölu. Að tölunni til voru opnu vélbátarnir flestir í Norðlendingafjórðungi og liefur svo jafnan verið. Þó voru mun færri þeirra gerðir út á þessu ári en verið hafði árið áð- ur, og hefur þeim einnig farið fækkandi undanfarin ár. Aðalútgerðartími þeirra var eins og hinna minni þiljubáta, um vorið og sumarið, en mjög lítið framan af árinu.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.