Ægir

Árgangur

Ægir - 01.01.1934, Blaðsíða 44

Ægir - 01.01.1934, Blaðsíða 44
ægir H F. EIMSKIPAFÉLAG ÍSLANDS AÐALFUNDUR Aðalfundur Hlutafélagsins Eimskipafélags íslands, verður haldinn í Kaupþingssalnum í húsi félagsins í Reykjavík, laugardaginn 23. júní 1934 og hefst kl. 1. e. h. DAGSKRÁ: 1. Stjórn félagsins skýrir frá hag þess og framkvæmdum á liðnu starfsári, og frá starfstilhöguninni á yfirstandandi ári, og ástæðum fyrir henni, og leggur fram til úrskurðar endurskoðaða reksturs- reikninga til 31. desember 1933 og efnahagsreikning með athuga- semdum endurskoðenda, svörum stjórnarinnar og tillögum til úr- skurðar frá endurskoðendum. 2. Tekin ákvörðun um tillögur stjórnarinnar um skiftingu ársarðsins. 3. Kosning fjögra manna í stjórn félagsins, í stað þeirra, sem úr ganga samkvæmt félagslögum. 4. Kosning eins endurskoðanda í stað þess er frá fer, og eins varaendurskoðanda. 5. Tillögur til breytinga á samþyktum félagsins. 6. Umræður og atkvæðagreiðsla um önnur mál, sem upp kunna að verða borin. Þeir einir geta sótt fundinn, sem hafa aðgöngumiða. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir hluthöfum og umboðsmönnum hluthafa á skrifstofu félagsins í Reykjavík, dagana 20. og 21. júní næstkomandi. Menn geta fengið eyðublöð fyrir umboð til þess að sækja fundinn á aðalskrifstofu félagsins í Reykjavik. Reykjavík, 31. desember 1933. STJÓRNIN

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.