Ægir - 01.01.1934, Blaðsíða 38
32
ÆGIR
Kort sem sýnir, hvar hinir 54 porskar voru endurveiddir við ísland 1933, sem merktir hafa verið
við Vestur-Grœnland undanfarin ár (kringlóttu deplarnir við Grænland sýna, hvar porskinum var
slept, örvaoddarnir við ísland, hvar þeir endurveiddust).
ýmist með aðstoð íslenzka ríkisins (á
»Þór«) og Fiskifélags íslands. Hefur for-
seti félagsins, Kristján Bergsson og með-
stjórnarmaður hans, Dr. phil. Bjarni Sæ-
mundsson, ávallt sýnt mikinn áhuga fyr-
ir merkingunum og lagt þeim liðsinni á
ýmsan hátt.
Þorskurinn er ýmist merktur á got-
stöðvunum við Suðurland, eða á upp-
vaxtargrunnunum við Norðvestur-, Norð-
ur- og Austurlandið. Mest endurveiðist
af síðartalda fiskinum, smáfiskinum; það
fást sem sé c. 22°/o eða V* af honum. Af
hinum stóra gotfiski endurveiðist færra,
c. 8°/o. í töflunum hér á eftir er gefið
yfirlit yfir nokkuð af útkomunni af þess-
um merkingum, eins og af merkingun-
um við Grænland. Ég get bætt þvi við,
að merkingaraðferðin, sem nú er höfð,
virðist vera allgóð, þar sem nokkurir
þorskar hafa borið merkin í allt að því 8
ár. Samt er það ekki efamál, að all-
mörg merki fara forgörðum og sumum
taka fiskimenn ekki eftir. Töflurnar tala
sinu máli; að eins skal ég benda á, að
nokkuð af þorskinum, sem merktur er
við Grænland, veiðist þegar sama árið í
nánd við staðinn, þar sem honum var
sleppt, þar sem aftur á móti endurveiðin
við lsland gerist ekki fyr en næsta ár, vegna
þess að ferðafýsnin, sem vaknar með
kynsþroska fisksins, gerir ekki vart við sig
fyr en að líðandi hausti eða um veturinn.
Það er nauðsynlegt að halda þessum
tilraunum áfram og auka þær, til þess
að komast að sem öruggastri niðurstöðu
og vér vonum þess vegna að vér meg-
um ætið verða aðstoðar aðnjótandi hjá
ríkisstjórn íslands, Fiskifélaginu og öll-
um óbreyttum íiskimönnum.