Ægir

Árgangur

Ægir - 01.04.1993, Blaðsíða 9

Ægir - 01.04.1993, Blaðsíða 9
endur frystra sjávarafurða og hafa bæði lagt háar upphæðir í uppbygg- lngu markaðs- og sölufyrirtækja, m.a. með störfum dótturfyrirtækja svo sem vel kunnugt er. Þá hafa framleið- endur innan þessara fyrirtækja varið hundruðunt ef ekki milljörðum ^róna í þróun hágæðavöru. dcelandic" frystur fiskur selst enn á hæsta verði á erlendum mörkuðum. f’að er fyrst og fremst stóru fyrirtækj- unum, S.H. og f.S., að þakka. Af hálfu þessara fyrirtækja er lögð mikil úhersla á að efla og vernda þessa stöðu. Á vegum þeirra beggja er rekið tnikið þróunarstarf, þar sem m.a. er iögð áhersla á að framleiða vöru, þar sem séreinkenni íslenska fisksins, homa best fram. Um er að ræða • m'ss konar sérvinnslu sem fellur neytendum vel í geð o.s.frv. Hjá S.H. er þessi þáttur hluti í hinurn almenna fekstri, en hjá Í.S. hf. var árið 1989 tekið í notkun svonefnt þróunarsetur Sem hýsir vöruþróunardeild og til- munaframleiðslu. Árið 1992 var ramlag framleiðenda innan Í.S. hf. |fm ^6,0 millj. kr., þ.e. 0,2% frá ramleiðendum á útflutningsverð- mæti frystra og ferskra afurða. Á móti hom jafnhátt framlag frá Í.S. hf. °g ðótturfyrirtækjum þess þannig að samtals 52,0 millj. króna runnu til þróunarstarfsins árið 1992. Hjá bæði S.H og Í.S. hf. hefur á sí ustu árum verið lögð rnikil áhersla f þr°un smásöluafurða, sérhæfða Uavinnslu o.fl. Af hálfu frystiiðnað- ar'ns var á árinu 1992 unnið mikið starf 0g ákveðnar veigamiklar breyt- 'nbar á framkvæmd mála með tilliti Cl aukinna krafna helstu markaðs- s'i'ða. Framleiðendum er nú skylt að starfrækja innra eftirlit sem byggir á ssokallaðri áhættuþáttagreiningu en reglubundið eftirlit með framleið- endum og ráðgjöf eru falin skoðun- arstofum. í lok febrúar 1992 hlaut Skoðunarstofa S.H. viðurkenningu Fiskistofu, fyrst slíkra skoðunarstofa á Islandi. Um starfsemi dótturfyrirtækja S.H. og Í.S. hf. erlendis vísast í 9. töflu sem sýnir umsvif þessara fyrir- tækja. Athygli vekur að á sama tíma sem Coldwater Seafood Corp. (S.H.) í Bandaríkjunum eykur sölu í dollur- um mælt um 10,3% er 15,8% sam- dráttur hjá Iceland Seafood Corp. (Í.S. hf.) Hagnaður var hjá báðum fyrir- tækjunum samtals $ 4,2 millj. fyrir skatta Árið 1992 var besta afkomuár Coldwater í sögu félagsins með $ 3,4 milljóna hagnað fyrir skatta, sem gerði $ 2,1 milljón eftir skatta. Þá skiluðu dótturfyrirtæki S.H. og Í.S. hf. í Evrópu góðum árangri. Þá rak S.H. fyrirtæki í Japan, Icelandic Freezing Plants Corp, Jap- an, Branch, sem annaðist sölu sjávar- afurða í Suðaustur-Asíu auk Japans. Mikil aukning var hjá Í.S. Ltd. í Þýskalandi eða 23,2%. Án nokkurs vafa eru fyrirtækjanet Sölumiðstöðv- ar hraðfrystihúsanna og íslenskra sjávarafurða hf. með innan sinna vé- banda ein hin best úfærðu og öflug- ustu fyrirtæki sinnar tegundar í heiminum. Góð samstaða frystihús- anna innan S.H. og Í.S. hf. um lengri tíma áherslur í framleiðslu- og sölumálum veitir sölufyrirtækjunum þann styrk sem úrslitum ræður í hinni hörðu samkeppni erlendis. Ávinningurinn skilar sér síðan í góðu verði fyrir afurðirnar, öruggri þjón- ustu og afskipunum og síðast en ekki síst öruggum greiðslum fyrir afhenta og selda vöru. Þetta er reynsla framleiðenda og viðskiptavina stóru sölufyrirtækjanna. Þess vegna hafa þau haldið stöðu sinni og frumkvæði og jafnframt tryggt stöðu íslensks sjávarútvegs. Tafla 9 Sala fyrirtœkja S.H. og Í.S. 1991 og 1992 1991 1992 Bandaríkin $ millj. $ millj. Coldwater Seafood Corp. 169,7 174,8 Iceland Seafood Corp. 132,9 112,1 Samtals 302,6 286,9 Bretland f millj. fmillj. Icel. Freez. Pl., Ltd 45,9 50,6 Icel. Seaf., Ltd 30,4 31,7 Samtals 76,3 82,3 Þýskaland DM millj. DM millj. Icel. Freez. Pl. CombH 91,2 95,0 Icel. Seafood, Ltd. 38,3 47,2 Samtals 129,5 142,2 Frakkland FRF millj. FRF millj. Icelandic France S.A (S.H.) 349,9 350,0 Icel. Seafood, Ltd. (Í.S.) 210,7 191,0 Samtals 560,6 541,0 4. TBL. 1993 ÆGIR 167
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.