Ægir - 01.04.1993, Blaðsíða 49
'erið meira háð fjárveitingum og
styrkjum sem hið opinbera og aðrir
8eta lagt fram.
Eins og að framan greinir er
l,ungamiðjan í mælingunum afl-
nyrnimælingar og mengunarmæling-
‘j1- Sem kunnugt er ræður TFF yfir
11 ^omnum búnaði til olíurennslis-,
afl- og orkumælinga, sem löng
te)'nsla er kornin á, og Vélskóli ís-
ands hefur nýlega eignast full-
’°ntinn búnað til mengunar-
^linga.
Athugasemdir
Eins og að framan greinir er notk-
Un bætiefna og búnaðar hafin í fiski-
s'ipum hérlendis í litlum mæli. Um-
°ðsaðilar bædefna og búnaðar hafa
; nnt úvinning af notkun efna sem
einkum byggist á erlendri reynslu og
þá í öðrum skipsgerðum. Þær athug-
anir sem gerðar hafa verið í íslensk-
um fiskiskipum eru ekki full-
nægjandi og í reynd erfitt að gera
samanburð sem byggist á athugunum
í veiðiferðum vegna ýmissa breyti-
legra aðstæðna og ófullnægjandi
mælitækni. Ymsir útgerðarmenn
halda að sér höndum, eða hafa
ákveðnar efasemdir um ágæti bæti-
efna, og má á það minna að áður
hafa komið fram bætiefni sem ekki
hafa sýnt sig að vera eldsneytis-
sparandi. Má þar nefna athuganir
sem TFF gerði á sínum tíma í Akra-
borg. Því er full ástæða til að gera
faglega og eins nákvæma úttekt og
unnt er hérlendis af óháðum aðilum
dl að fá svör við ýmsum spurning-
um.
Olíukostnaður íslenska fiskiskipa-
flotans er nálægt 4 milljörðum á ári.
Ef til dæmis 5% olíusparnaður næst
með notkun bætiefna og búnaðar er
urn talsverðar upphæðir að ræða og
jafnvel þótt sparnaðurinn sé minni,
en á móti einhver kostnaður við kaup
á bædefnum og búnaði. Einnig hefur
verið bent á minni viðhaldskostnað á
vélbúnaði við notkun bætiefna. Þá
hlýtur það einnig að vera keppikefli
sérhverrar þjóðar að draga sem mest
úr mengun, nú þegar tekið er meira
tillit dl umhverfissjónarmiða.
Kostnaður, fjármögnun
I verkefnisáætlun er gert ráð fyrir
um 3ja milljóna heildarkostnaði við
verkefnið. Gert er ráð fyrir að sam-
starfsaðilar fjármagni um 55% af
kostnaði, en það sem á vantar verði
fjármagnað með opinberum
styrkjum.
SIGLINGAMÁLASTOFNUN RÍKISINS
HRINGBRAUT 121, 107 REYKJAVÍK. SÍMI 25844
Eigendur skipa og báta, skipstjórar
SIGUNGAMÁLASTOFNUN RÍKISINS vill að gefnu tilefni minna skipstjóra
og eigendur skipa og báta á að samkvæmt lögum er skylt að láta skoða
árlega öll skip og báta stærri en 6 metra að lengd.
Ennfremur viljum við benda kaupendum skipa og báta á að ganga ætíð úr
skugga um að lögbundnar skoðanir hafi farið fram, svo og skuldaskil, og
tilheyrandi búnaður fylgi við eignaskipti.
Siglingamálastjóri
4. TBL. 1993 ÆGIR 207