Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.03.1951, Blaðsíða 13

Tímarit lögfræðinga - 01.03.1951, Blaðsíða 13
Eggert Claessen, hæstaréttarlögmaSur 5 tókst að vísu ekki. Olli því það tvennt, að íslandsbanki var fjárhagslega sligaður, er Eggert Claessen tók við, svo og hitt, að bankinn var á þeim tíma stjórnmálalegt bitbein. Sjá það nú allir, að við svo búið var það hverjum manni ofraun að bjarga bankanum. Það, sem framar öðru snýr að lögmannastéttinni, eru lögmannsstörf Eggerts Claessens. Hann gerðist brátt for- ustumaður meðal stéttarbræðra sinna og þeir Sveinn Björnsson báðir. Fyrir þeirra forgöngu var stofnað Mál- flutningsmannafélag Islands, sem nú heitir Lögmanna- félag Islands. Þetta var 1911 og er félagið því fertugt á þessu ári. Var Eggert Claessen formaður félagsins 1911— 1918 og 1939—1940. Stofnun félagsins var táknræn um umgengnisvenjur lögmanna. Á undan þeim Eggert Claes- sen hafði samvinna lögmanna verið mjög í molum og ber dómasafn Yfirdóms glögglega vitni þess. Þetta breyttist smátt og smátt í það horf, sem vér nú þekkjum, að lögmenn vilja hver annars götu greiða. Oft undraðist ég það, hve vel Eggert Claessen lét að umgangast yngri stéttarbræður sína, þótt aldursmunur væri stundum mikill. Hann um- gekkst þá sem jafningja. Hitt var eðlilegt, að allir skoðuðu hann sem Nestor stéttarinnar. Mestu varðaði þó að sjálfsögðu hitt um lögmannsstörf Eggerts Claessens að hann var snjall lagamaður, en jafn- framt samvizkusamur og vandvirkur, svo að af bar. Fékk því hver maður traust á honum, sá er til hans leitaði. Vissi ég og engan verða fyrir vonbrigðum, þann er bað hann að ljá sér lið. Það sagði við mig ritstjóri þessa tímarits skömmu eftir andlát Eggerts Claessens, að engan myndi hann hafa kosið sér sem málsvara honum fremur, ef hann hefði átt hendur sínar að verja fyrir dómstólum hér á landi. Eggert Claessen var maður fluggáfaður. Fóru þar saman góðar námsgáfur, traust minni og örugg dómgreind. Hann var þrekmenni, viljafastur, einarður og hreinskilinn. 1 málflutningi var hann kappsamur og öruggur bardaga- maður, hvort sem var fyrir dómi eða á öðrum vettvangi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Tímarit lögfræðinga

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.