Tímarit lögfræðinga - 01.03.1951, Blaðsíða 26
18
Tímarit lögfræSinga
foreldris. Sýnast því breytingar á stöðu kjörbarna eftir
frv. vera beinlínis stórskemmd á ákvæðum erfðalaganna.
TJm S. Það má sjálfsagt þykja eðlilegt, að afar og ömmur
erfi barnabörn sín, enda alls ekki ótítt, að þau taki þau til
fósturs, er þau hafa misst foreldra sína og stundum ann-
ars, enda er einatt náið frændsemisband milli afa og ömmu
annars vegar og barnabarns hins vegar. Hins vegar er
venjulega lítil ástæða til þess, að systkin foreldra arfleif-
anda taki fé eftir hann. Nú á dögum eru víst sjaldaan svo
náin ættarbönd milli þessara aðilja, að ástæða sé þar til
erfða, enda erfir maður ekki föður eða móðursystkin sín,
eftir frumvarpinu. Ákvæði frv. um brottfall erfðaréttar
þeirra sýnist vera alveg réttmæt.
1 frv. sýnist því vera réttmæt tillaga til þeirrar breyt-
ingar á ákvæðunum um frændsemiserfð,
a-ð brott falli erfðaréttur systkina foreldra arfleifanda.
Hins vegar má til spillis telja:
1. Lok erfðaréttar niðja arfleifanda á barnabörnum
hans (2. lið), og
2. Meðferðin á kjörbörnum.
Einfaldast og, að því er virðist, sanngjarnast væri það,
a'ö erföaréttur væri einungis veittur niöjum arfleifanda
og kjörbörnum og niöjum þeirra, eins og nú er samkvæmt
erföalögunum, síöan foréldrum og systkinum og loks fööur
og móöurforeldrum. Erföaréttur barna systkina og syst-
kina foreldra veröi numinn úr lögum.
2. Hjúskaparerfö. Samkvæmt 5. gr. frv. er lagt til, að
maki erfi maka sinn að 14 af eignum hans, ef inn látni
maki átti börn á lífi. Kjörbörn eða niðjar þeirra teljast
ekki með börnum arfleifanda hér fremur en annars í
frv. Að þessu undanteknu er regla frv. in sama sem í 7. gr.
erfðalaganna. Ef arfleifandi á hvorki börn né barna-
börn á lífi, þá erfir maki allar eignir hans eftir 5. gr. frv.
Foreldrar arfleifanda og systkin, kjörböm og börn þeirra
og afa og ömmur ganga því ekki til erfðar með maka, eins
og mælt er í 7. gr. erfðalaganna. Um réttmæti þessa má
vísa til þess, sem áður er sagt um kjörbörn. Um heimild