Tímarit lögfræðinga - 01.03.1951, Síða 35
Þjófamark (brennimark) sumkvæmt íslenzkum löyum
27
1. Tveggja marka stuldur framinn fyrsta sinni varðaði,
auk „refsingar" (húðláts), missi alls lausafjár. En ef aðili
átti í jörðu, þá skyldi virða til 13 marka. Ákvæði þetta er
allóskýrt. Má sjálfsagt bæði skilja það svo, að allt af skyldi
virða konungi 13 merkur úr jörð eða svo, að það skyldi
því aðeins gert, að aðili ætti ekki lausafé til 13 marka.
Þjófur, sem erft hefði t. d. 5 hundruð í jörð, hefði þá fyrir-
gert henni til konungs, ef lausafé var ekki til 13 marka.
En víst hefur sjaldan til slíks komið, með því að aðili hefur
sjaldnast átt fasteign. Brennimarks er ekki getið sérstak-
lega. Mætti vera, að mátt hafi telja það til ,,refsingar.“
2. Tveggja marka stuldur öðru sinni varðaði dauðarefs-
ingu, sem framkvæmd var eins og áður segir, enda skyldi
aðili þá hafa fyrirgert öllum eignum sínum.
Ákvæði Jónsbókar Þjófab. 1. kap. eru um margt heldur
ófullkomin, enda að sumu óheppileg að skoðunarhætti nú-
tímamanna. Inn skarpi greinarmunur milli þjófnaðarteg-
unda eftir verðmæti inna stolnu muna mundi nú vera
nefndur blátt áfram vitleysa. Stuldur til hálfrar sjöttu
álnar þarf t. d. auðvitað ekki að vera miklu ósaknæmari en
stuldur til 6.álna (eins eyris). Samskonar má segja um
t. d. stuld til 7 aura og stuld til einnar merkur og stuld til
tæpra tveggja marka og stuld til fullra tveggja marka.
Þá þykir mönnum nú fráleitt að binda refsingar fyrir
brot svo mjög sem gert er í Þjófab. 1. kap., eins og víðar í
lögum þeirra tíma, og reyndar lengi síðan var gert. Sektir
eru alveg lögbundnar víða, svo að engu verður um þokað
til hækkunar eða lækkunar eftir ástæðum hverju sinni.
Húðlátsrefsingin er ið eina, sem dómendur geta látið
fara nokkuð eftir atvikum.
Ákvæðin um brotin sjálf og ítrekun brota eru allglopp-
ótt. Ekkert segir um það, hvort leggja megi saman
verðmæti, er maður hefur stolið í fleira en einu lagi,
svo að þau samanlögð nemi eyri, einni mörk eða tveim-
ur. Ef A hefur t. d. stolið til 2 álna á staðnum x,
til 3 álna á staðnum y og loks til 2 álna á staðnum
z, alls til 7 álna, þá vantar fyrirmæli um það, hvort það