Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.03.1951, Page 40

Tímarit lögfræðinga - 01.03.1951, Page 40
32 Tímarit löyfræSinga er honum dæmt „að leysa húð sína“ 6 mörkum, en „ef hann leysir ei, þá sé brugðið lykli á kinn honum, sem lög gera ráö fyrir“.1 2) Dómur þessi er verður athygli af tveim- ur ástæðum. 1 fyrsta lagi sýnist þetta vera fyrsti dómur, sem upp er kveðinn yfir sökunaut fyrir stuld. Samt sem áður er hann dæmdur fyrir eyrisstuldinn síðari eins og fyrir öðru sinni framið brot. Með öðrum orðum: Það skil- yrði nútíðarmanna til ítrekunarrefsingar fyrir brot, að dómur hafi gengið um hvort eða hvert brotanna, áður en ið síðara eða síðasta var framið, er ekki sett. Síðari stuld- urinn er hér metinn sem öðru sinni framið brot, enda þótt dómur hafi ekki gengið um fyrri eyrisstuldinn, áður en sá síðari var framinn. 1 öðru lagi er beinlínis gert ráð fyrir því, að sökunautur geti leyst sig undan brennimerkingu með greiðslu 6 marka gjaldsins. Hinsvegar er það óglöggt eftir orðalagi dómsins, hvort sökunautur skuli bæði sæta hýðingu og brennimerkingu, ef sektin greiðist ekki. Eftir ákvæðum Jónsbókar Þjófab. 1. kap. hefur það orðið að fara, og er ekki vafasamt, að sökunaut skyldi þá bæði hýða og brennimerkja. Árið 1592 dæmir Þórður lögmaður með dómendum sín- um annan dóm á Heggsstöðum. Maður nokkur játaði sig hafa „tekið mör úr sauð ólafs Þorvaldssonar lifandi“ og „lagzt undir fénað manna og drukkið, síðan honun var refst.“. Er manninum dæmt húðlát þegar í stað og i.ojtrk, sem þó má láta undan ganga, ef hann leiðréttir sig, en þegar skyldi hann markaður, ef hann hyrfi aftur til sömu yfirsjónar.-) Svo virðist, sem manninum hafi verið áður refsað fyrir stuld, og að mörstuldurinn sé öðru sinni fram- inn þjófnaður. En ekkert segir um verðmæti þýfisins. Þeir, sem sugu kú annars manns, skyldu vera réttlausir (þ. e. bótalausir, ef á hlut þeirra var gert), en önnur refsing var þeim ekki mælt, Jónsbók Þjófab. 10. kap. Ekki er unnt að segja um það með vissu, hvort lögmælt skilyrði hafi 1) Alþb. ísl. II. 230. 2) Alþb. Islands II. 321.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.