Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1966, Page 6

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1966, Page 6
en ákjósanlegt hefði verið. En hitt er satt, að livorki honum né neinum öðrum gat fyrirfram verið fullkom- lega Ijóst, i hvað var ráðizt, né sumt það, sem við var að etja. Tvennt hygg ég samt óhætt að fullyrða til þess að vega á móti sumum vonbrigðum. Ekki hefur verið slakað á klónni, nema síður sé, um að vanda útgáfuna eftir föngum og kjósa heldur að gera betur en hafa hraðan á, ef um slíkt var að velja. Og það er trúa min, að héðan af sé óhugsandi að leggja árar í bát, fyrr en náð hefur verið settu marki, hvort sem það tekur lengri eða skemmri tíma og hverjir sem þá leggja hönd að verki. Þetta átti raunar að vera styttra mál en komið er. En elcki verður því lokið, án þess að ég drepi á þau kynni, sem ég hef fengið af manninum, jafnframt sam- starfinu við forseta Fornritafélagins. Um Jón Ásbjörns- son þori ég óhikað að nota orð Hórazar: integer vitae scelerisque purus, vammlaus og vítalaus. Hann mundi aldrei skoða hug sinn um að hafa það, sem sannara reynist, þótt það brjóti í bág við annað, sem hann hefði heldur kosið, að satt væri, — og hafa samstarfsmenn hans við útgáfu fornsagnanna sannast að segja stund- um reynt þolrifin að þessu leyti. Þótt hann sé fjarri því að vera nokkur veifiskati i skaplyndi, er honum gefin hlutlæg dómgreind og objektivitet, sem stendur jafnt rótum í vitsmunum og siðferði. Mikið orð fór af honum sem málaflutningsmanni, og vafalaust hefur hann aldrei brugðist þeirri skyldu sinni að gera mái- stað skjólstæðinga sinna svo góðan sem efni stóðu til. En þrátt fvrir traust mitt á honum, mundi ég hafa hik- að við að leita til hans með mál, sem hefði þurft að fegra fyrirfram. Þessari hlutlægni hans fylgir samt eng- inn kuldi, eins og stundum getur átt sér stað. Sömu ræktarsemi, sem hann liefur sýnt þjóð sinni og gersem- um hennar, hefur hann í einkalífi sinu látið vini og vandamenn njóta i rikum mæli. Og á þessum afmælis- 4 Tíniarit lögfræðinga

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.