Tímarit lögfræðinga - 01.01.1966, Blaðsíða 43
göngu fjallar 50. gr. eml. Það er ljóst af orðalagi þessa
HSs, að ekki skiptir máli, hver ástæðan er til synjunar-
innar, t. d. hvort tilefnið er mótmæli aðila eða dómari
synjar að eigin frumkvæði.
j. „Að frestur skuli veittur“. Það hefur lengi þótt við
brenna, að þeir aðilar máls, er viljað hafa draga það á
langinn, hafa óskað frests á frest ofan og til þess notað
hvers konar röksemdir oft einskis nýtar. Er synjað hefur
verið um frest, hefur synjunar úrskurðinum verið skotið til
Hæstaréttar og málið siðan dregið eftir getu. Háttalag
sem þetta hefur lengi loðað við málarekstur, sbr. m. a.
það, sem áður segir um tilefni tilsk. 1690. Þess var og
áður getið, að með eml. var tilætlunin að skapa fljótfarna
og einfalda leið til þess að fá úrskurð Hæstaréttar um
ýmis formsatriði máls, jafnframt því, sem heimildir í
því efni voru rýmkaðar. Hér fór þó enn sem fyrr, að
kæruleiðin þótti misnotuð og þá ekki sizt heimildin til
þess að kæra úrskurð, þar sem synjað var um frest, en
slíkan úrskurð mátti kæra samkv. 105. gr. eml. i.f. Því
er það, að i j-lið, 21. gr. hrl., er einungis veitt heim-
ild til þess að kæra úrskurð, er frestur var veittur, en
ekki úrskurð ,er synjar beiðni um frest. Víða í eml. er
svo til orða tekið, að úrskurði verði aðeins haggað með
kæru og svo er m. a. í 105. gr. Nú eru nær öll ákvæði eml.
um kæru felld úr gildi með 61. gr. hrl. og þá einnig greint
ákvæði. En þá vaknar sú spurning, hvort slíkum úrskurð-
um verði nú áfrýjað ásamt aðalmálinu. 17. gr. hrl. bendir
til þess. Hins vegar má flytja fram gild rök gegn þeirri
skoðun. Fyrst er, að megintilgangur hrl. var að þrengja
heimildir til þess að skjóta einstökum þáttum máls til
Hæstaréttar. Að vísu beindist lagfæring í þessum efnum
að kæru og sjálfstæðri áfrýjun, en ekki að áfrýjun i sam-
bandi við aðalmál, sbr. 17. gr. En þá er athugandi, að í
aths. við fyrirmynd 21. gr. hrl., þ. e. 287. gr. fv. laga um
meðferð einkamála, er þess getið, að sjónarmið ts. 1690
séu að nokkru tekin upp að nýju, þótt það sé eigi gert
Tímarit lögfræðinga
41