Tímarit lögfræðinga - 01.01.1966, Blaðsíða 39
er sú leið bæði tafsamari og dýrari en kæruleiðin. Er áður
að þessu vikið. Það kemur og fram í 2., 3. og 4. tl. 21. gr.,
að kæra má ýmsa þætti þeirra mála, er þar getur, en
áfrýja þeim ákvörðunum, er mest svipar til dóms í venju-
legu einkamáli. Þar kemur og fram, að um hvert tilvik
gildir aðeins önnur leiðin, þ. e. þær útiloka hvor aðra.
Rök fyrir mismunandi málskotsreglum á þessu sviði
virðast og torfundin, enda eru mál þessi beinn þáttur
aðalmáls, en 'þau mál, sem um ræðir í 2., 3. og 4. tl. 21.
gr., eru í miklu minni tengslum við aðalmálið — eru
reyndar í eðli sinu sjálfstæð viðbótarmál. Sjónarmið, er
ráða meðferð þeirra, eru þvi ekki sambærileg við þau, sem
ráða um mats- og vitnamál. Eðlisrök benda því til þess,
að um öll vitna- og matsmál sé kæra eina málskotsleiðin,
þrátt fyrir orðalag 17. gr. hrl. Hér má þess og enn geta,
að 4. 1. 24. gr. hrl. nr. 112/1935 var orði til orðs samhljóða
17. gr. hrl. Kæruheimildir voru engar til þegar lög nr. 112/
1935 voru sett. Að vísu var i lögum nr. 19/1924 til mal-
skotsheimild, sem að aðferð til samsvarar því, sem nefnt
var kæra, er eml. voru sett, eins og áður er sagt. En í
lögum nr. 19/1924, sbr. IV. kafla laganna, var þessi að-
ferð nefnd áfrýjun og lcæruhugtakið komst því ekki í
lög, fvrr en með eml. Sennilegt er því, að þess hafi ekki
verið gætt, er 4. 1. 24. gr. laga nr. 112/1935 var tekinn
óbreyttur i 17. gr. hrl., að hér var nýtt hugtak komið tii
— kæruhugtakið — sem notað var í 21. gr. hrl. og orðin
„og án þess“ í 17. gr. áttu þvi ekki við.
Hér næst á undan hefur verið rætt um vitnamál. En
alveg sama á við um matsmál, því að orðalag c- og d-liðs
21. gr. er hið sama að breyttu breytanda.
e. „Skyldu gagnaðilja eða þriðja manns til að leggja
fram skjöl eða aðra hluti og viðurlög vegna tregðu til þess“.
Hér er fjallað um sýnileg sönnunargögn. Kæruheimild
á þessu sviði var áður í 151. gr. eml. og þar vísað til 145.—
149. gr. þeirra laga, shr. og 152. gr. Mun mega telja, að
þótt orðalag 151. gr. eml. og e. 1. 21. gr. hrl. sé ekki hið
Tímarit lögfræðinga
37