Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1966, Side 52

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1966, Side 52
gr. uppl. Ákvæðið á hins vegar við um loftför, sbr. lög nr. 20, 16/4 1966, um breytingu á lögum nr. 57/1949. 5. f lok 21. gr. er svofellt ákvæði: „Einnig er hverjum þeim, sem telur héraðsdómara hafa gert á liluta sinn í dómarastarfi, j-étt að kæra hann fyrir Hæstarétti, og getur Hæstiréttur veitt dómara áminningu eða dæmt honum að greiða sekt að fjárhæð 200—4.000.00 kr. til ríkissjóðs“. Áður hefur verið vikið að því, að þessi kæruheimild verður víst ekki notuð lil þess að fá ákvörðunum héraðs- dómara breytt. í því efni verður að leita heimildar í þeim 4 liðum 21. gr., sem ræddir hafa verið hér á undan, eða þá, ef svo vill verkast, í sérlögum. Hérgreint ákvæði samsvarar 4. 1. 34. gr. eml. og nær tii þess tilviks, að framkoma dómara hafi verið svo ámælis- verð, að vítum varði. Er þá eftir atvikum hægt að beita áminningu eða sekt, sbr. Hrd. XXXVII-535. Vafasamara er, hvort í þessu ákvæði felist heimild til kæru í þvi skyni að koma fram þeim viðurlögum á hendur dómara, sem 2. og 3. 1. 34. gr. eml. fjallar um. I þeim liðum er rætt um að áfrýja megi sjálfstætt i því skyni að koma fram skaðabótakröfu á hendur dómara vegna meðferðar hans á málinu (2. 1.) svo og til þess að fá dómara sektaðan (3. 1.). I 4. 1. 34. gr. er vísað til 3. 1. og verður ekki annað séð en að báðar leiðir, sjálfstæð áfrýj- un og kæra, hafi verið opnar til þess að koma fram kröfu um sekt á hendur dómara. Þetta er algerlega andstætt aðalstefnu hæstaréttarlaganna og óhagkvæm regla, eins og áður hefur verið vilcið að. Þess hefur áður verið getið, að við samningu hrl. var frv. að nýjum einkamálalögum haft í huga öðrum þræði. I 19. og 20. gr. frv. eru ákvæði um dómaraábyrgð, er skyldu koma í stað 34. gr. eml. 1 2.1. 19. gr. frv. er Hæstarétti veitt heimild til þess að veita héraðsdómara áminningu eða gera honum sekt á liendur, ex officio, ef efni standa til. Virðist samkv. grg. ekki hafa verið ætlazt til að hér yrði breytt frá 3. 1. 34. gr. eml. Þó 50 Tímarit lögfræðinga

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.