Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.01.1966, Page 55

Tímarit lögfræðinga - 01.01.1966, Page 55
kærandi ekki taka kæruna aftur, verður dómari þó að afgreiða hana á þann hátt er segir í b) hér á eftir. Ef kæra fullnægir ekki kröfum þeim, sem greindar eru í 2. lið hér á undan, sbr. 23. og 24. gr. hrl., brýnir héraðs- dómari fyrir kæranda að ganga frá henni lögum sam- kvæmt. I 26. gr. hrl. segir, að gagnaðili kæranda geti átt rétt á því, að kærandi setji tryggingu fyrir tjóni eða óhagræði, er kæra kann að baka gagnaðila, þó því aðeins að kæra valdi frestun aðalmálsins og krafizt sé tryggingar Það er og skilyrði, að dómari telji kæru á engum rökum reista. Til tryggingar mundi einkum koma, ef kærandi sinnti ekki bendingum dómara, sbr. 25. gr. hrl. Ef setja ber tryggingu, skal það gert innan tveggja daga (sólarhringa) frá þvi kæru er lýst. Þetta tímamark þarf nánari athug- unar. Skylda kæranda til þess að setja tryggingu er bundin tveim formskilyrðum. 1. Að krafa sé gerð um tryggingu og 2. Að dómari fallist á þá kröfu. Það er því ákvörðun dómara, sem hér veltur á og kær- anda er ekki skylt að bjóða tryggingu fyrr en dómari hefur ákveðið að hún skuli sett og hve há. Orðin „frá þvi kæru er lýst“ verða því ekki skýrð bókstaflega, þ. e. ekki þannig að miða beri við það, er kæra barst dómara. Virðist þá ekki annað tímamark koma til greina en það, er dómari lýsir þeirri ákvörðun sinni, að kæran verði ekki send áleiðis, fyrr en trygging sú, er hann telur hæfa, er sett. Láti kærandi undir höfuð leggjast að setja tryggingu innan tveggja daga frests frá þvi að hann vissi eða mátti vita um ákvörðun dómara, afgreiðir dómari eigi skjölin og aðalmálið fer leiðar sinnar. Þetta ákvæði er sett til þess að sporna við tilefnislausum kærum, svo og til þess að flýta kærumálum. Því verður og að ætla, að kærandi, sem eigi setur þá tryggingu, er honum ber og á réttum tíma, geti ekki fitjað upp á nýrri kæru, jafnvel þótt kæru- frestur sé ekki liðinn, eða m. ö. o. glati kæruheimild sinni. Tímarit lögfræðinga 53

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.