Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.08.1979, Síða 14

Tímarit lögfræðinga - 01.08.1979, Síða 14
Sem dæmi um beitingu ofangreindra sjónarmiða á vettvangi vinnu- réttar má nefna tvo dóma. Féld. 1975, 248. Réttarstaða póstdreifingarmanna. Sjö póstdreifingarmenn á Suðurlandi höfðuðu mál fyrir Félags- dómi gegn ríkissjóði og kröfðust þess að dæmt yrði, að lög nr. 46/1973 um kjarasamninga opinberra starfsmanna taki til þeirra. Krafa þeirra var ekki tekin til greina. 1 dómsforsendum ségir m.a.: „Um það er ekki ágreiningur, að sóknaraðiljar leggi sjálfir til farartæki til póstflutninganna. Er ljóst af samningunum við sóknaraðilja, að gjald fyrir flutningana er ákveðið sem einingar- verð fyrir hvern kílómetra póstleiðar, þótt á grundvelli vega- lengda póstleiða og umsömdum ferðafjölda á viku sé unnt að reikna greiðslur á hverri viku. Samkvæmt samningunum við sóknaraðilja eru þeir ekki skuldbundnir til að annast póstflutning- ana sjálfir, enda gert ráð fyrir því í samningunum, að þeir hafi aðstoðarmenn. . .. þá má ráða það af gögnum málsins . .., að sóknaraðiljar eru að miklu leyti sjálfráðir urn, hvernig þeir haga störfum sínum við póstdreifinguna. Þegar á það er litið, sem hér hefur verið rakið, verður að líta svo á, að samningar sóknaraðilja og póststjórnarinnar séu í eðli sínu verksamningar. Þykir það ekki hafa áhrif á þessa niðurstöðu, þótt samið hafi verið um greiðslu orlofs af helmingi greiðslna þeirra, sem reiknaðar eru sem vikulegar greiðslur samkvæmt samningunum.“ Hrd. 1978, 772. Réttur sjónvarpsþýðanda tií orlofsfjdr. I máli þessu krafði kona nokkur Ríkisútvarpið um orlofsfé af greiðslum, sem hún fékk vegna þýðingarstarfa fyrir sjónvarp. Samkvæmt orlofslögum þótti konan ekki eiga tilkall til orlofs- fjár. Til stuðnings niðurstöðunni var í dómi vísað til eftirfar- andi atriða varðandi störf þýðanda: „Greiðslur fyrir þýðingar- störf stefndu fyrir áfrýjanda eru ákveðnar í sérstakri gjaldskrá. Eru starfsþættir sundurgreindir og mismunandi greiðslur ákveðn- ar fyrir einstaka þætti. Eru greiðslur einum þræði miðaðar við tíma, sem til verks er varið, en öðrum þræði er annar mælikvarði notaður við ákvörðun þeirra. Sérstakt ákvæði er um endursýn- ingu sjónvarpsmyndar. Fær stefnda þá einnig greiðslu fyrir þýð- ingu sína, en þó lægri en upphaflegum þýðingarlaunum nemur. Samkvæmt gögnum máls er sambandi málsaðilja þannig háttað, að stefnda er ein úr allfjölmennum hópi manna, sem áfrýjandi 60

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.