Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.08.1979, Qupperneq 17

Tímarit lögfræðinga - 01.08.1979, Qupperneq 17
um hafi borið að sjá tii þess að bætt væri úr öryggisskortinum. Af þessum sökum þótti KR bera bótaábyrgð vegna slyssins. Úrslit málsins ultu ekki á því, hvort trésmíðameistarinn teldist sjálf- stæður verktaki (honum var ekki stefnt í málinu). Hér nægði að sýna fram á sök nefndarformannsins, en samband hans og KR var með þeim hætti, að eðlilegt var að líta á KR sem vinnuveitanda hans. Að vísu kemur sára lítið fram í dóminum um starfssvið formannsins, og vera má, að réttara sé að telja, að bótaskylda KR byggist hér á sök hans sem eins af (æðstu) stjórnendum félagsins. Nefna má enn einn dóm um ábyrgð húseiganda: Hrd. 1969, 117. Bill skemmdist, er pak fauk af prentsmiðju á Akureyri. Þessi dómur varðar bótakröfu eiganda bifreiðar, sem laskaðist, er þak fauk af húsi Prentverks Odds Björnssonar h.f. (POB) á Akureyri í miklu hvassviðri. Atburðurinn átti rót sína að rekja til vanbúnaðar þaksins, en gerð þess var andstæð ákvæðum bygg- ingarsamþykktar. Með vísun til þessa þótti rétt, að POB bætti bifreiðareigandanum tjón hans.24 Þakið var smíðað af sjálfstæðum verktaka rúmlega 20 árum fyrir tjónsatburðinn. Var ekki leitt í Ijós, að fyrirsvarsmenn eða starfs- menn POB hafi haft afskipti af sjálfri smíði hússins. 1 héraðsdómi kemur fram, að þakinu hafi ekki verið haldið við eða það endurbætt á þessum tveimur áratugum. Mætti þess vegna halda því fram, að at- hafnaleysi POB í þessu efni hafi átt þátt í því, að þakið þoldi ekki óveðrið. Ef fallist væri á það, bæri POB bótaábyrgð eftir almennum reglum um ábyrgð á yfirsjónum starfsmanna eða stjórnenda. Á hinn bóginn, víkur Hæstiréttur ekki beint að hugsanlegri ábyrgð vegna vanrækslu á viðhaldi og endurbótum. Má því skilja dóminn þannig, að húseigandinn sé í þessu tilviki bótaskyldur vegna saknæms atferlis sjálfstæðs verktaka eða jafnvel, að hann beri algerlega hlutlæga á- byrgð á vansmíði þaksins. 24 Einn dómara Hæstaréttar vildi ganga enn lengra en meiri hluti dómenda. Taldi hann eðlilegt og rétt, að POB bæri sem húseigandi fébótaábyrgð á tjóninu, án tillits til þess, hvort um var að ræða „sök húseiganda eða annarra, sem hann bar ábyrgð á um vanbúnað þaksins.“ Vísaði dómarinn til þess, að veðrahamurinn hafi ekki verið meiri en jafnan megi búast við hér á landi. 63

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.