Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.08.1979, Síða 18

Tímarit lögfræðinga - 01.08.1979, Síða 18
Hrd. 1934, 838. Skemmdir á varningi, sem fluttur var með vöru- bifreið. Kona nokkur bað um vörubifreið hjá Vörubílastöð Reykja- víkur til flutnings á innanstokksmunum. Munirnir féllu af vöru- bifreiðinni í akstri og skemmdust. Sótti konan bílastöðina til greiðslu bóta. Vörubílastöðin var félágsskapur eigenda vörubif- reiða. Hver bifreiðarstjóri átti sína bifreið og greiddi af henni stöðvargjald. Fyrir gjaldið annaðist stöðin afgreiðslu, reiknings- hald og innheimtu flutningsgjalda. Stöðin gaf út akstursreikn- inga í sínu nafni og hverjum félagsmanni hennar var samkvæmt félagssamþykktum skylt að fara í þá vinnu, er stöðvarstjóri skip- aði honum. Einnig voru í samþykktunum ákvæði um, að stjórn stöðvarinnar eða stöðvarstjóri gerði samninga um akstur, er séu bindandi fyrir stöðvarmenn og að enginn einstakur félagsmaður megi gera samninga um akstur, nema í samráði við stjórn eða stöðvarstjóra. Vörubílastöðin var sýknuð, þar sem eigi var litið svo á, að hún hefði komið fram „við samningana um aksturinn sem verksali eða reki aðra sjálfstæða starfsemi en þá að annast afgreiðsluna og vera miðlari milli eigenda og notenda." Var því ekki talið, að stöðin bæri ábyrgð á tjóni af akstri.25 Vörubifreiðastöðin hafði rétt til að gefa einstökum félagsmönnum fyrirskipanir innan vissra marka. Hins vegar munu stjórnendur stöðv- arinnar ekki hafa haft neitt eftirlit með vinnu einstakra félagsmanna og enn síður gefið þeim fyrirmæli eða leiðbeiningar um, hvernig Iiaga ætti verkum í einstökum atriðum. Sýnist því hið almenna skilyrði um stjórn og skipunarvald ekki hafa verið fyrir hendi. Þótt Hæstiréttur virðist leggja höfuðáherslu á réttarstöðu aðila samkvæmt samningi þeirra, hefur dómur þessi almennt gildi í skaðabótarétti utan samninga. 25 Hér á landi er réttarsamband mjög margra bifreiðastöðva og félagsmanna beirra í flestum atriðum hliðstætt því, sem hér greinir. Á betta jafnt við um bifreiðir til fólks- flutninga (,,leigubíla“), sendiferðabifreiðir og vörubifreiðir. Stöðvar, sem annast af- greiðslu fyrir áætlunarbifreiðir til flutnings farþega og varnings (sérleyfisbifreiðir), eru hinsvegar ekki alveg hliðstæðar hinum fyrmefndu. Þegar dæma skal um, hvort bifreiðastöð beri bótaábyrgð gagnvart viðskiptamanni eða öðrum, verður að sjálfsögðu að kanna sérstaklega aðstæður í hverju falli fyrir sig. Nefna má norskan dóm í RG 1965.527, sem Selvig ræðir um á bls. 140—1. Þar var ábyrgð felld á vörubifreiðastöð vegna tjóns, er aðstoðarmenn bifreiðarstjóra ollu. Samband bifreiðarstjóra og aðstoð- armanna hans annars vegar og stöðvarinnar hins vegar var miklu nánara en almennt gerist hér á landi. Verður að telja niðurstöðu norska dómsins eðlilega, eins og atvik- um var háttað. 64

x

Tímarit lögfræðinga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.