Tímarit lögfræðinga - 01.08.1979, Side 49
Tveir almennir félagsfundir voru haldnir á árinu, annar um endurgjaldslausa
lögfræðiaöstoð en hinn um nýju þinglýsingarlögin.
Við stjórnarkjör var Þorsteinn Júlíusson hrl. kjörinn formaður félagsins, en
meðstjórnendur til tveggja ára voru kjörnir Jónas A. Aðalsteinsson hrl. og
Helgi V. Jónsson hrl. Úr stjórninni gengu samkvæmt félagslögum þeir Guðjón
Steingrímsson hrl., Hákon Árnason hrl. og Jón E. Ragnarsson hrl. Áfram sitja
í stjórninni til næsta aðalfundar þeir Stefán Pálsson hdl. og Skarphéðinn Þóris-
son hdl. í varastjórn voru kjörnir til eins árs þeir Gunnar Sólnes hrl., Jón
Magnússon hdl. og Ólafur Axelsson hdl. Endurskoðendur félagsins voru
kjörnir Ragnar Ólafsson hrl. og Othar Örn Petersen hdl. og til vara Gústaf Þór
Tryggvason hdl.
Gjaldskrárnefnd var endurkjörin, en í henni eiga sæti Gunnar Sæmundsson
hdl., Skúli J. Pálmason hrl. og Jón Ólafsson hrl.
Fundurinn samþykkti breytingar á samþykktum félagsins þess efnis, að á
aðalfundi skuli auk gjaldskrárnefndar kjósa tvær fimm manna nefndir. Nefnist
önnur kjaranefnd en hin laganefnd. Hlutverk kjaranefndar er að vinna að
bættum hag félagsmanna og gera tillögur til stjórnar félagsins um málefni, er
varða kjör þeirra, svo sem launamál, markaðsmál, tryggingamál, skattamál,
orlofsmál og menntunarmál. Hlutverk laganefndar er að fylgjast með lögum,
lagaframkvæmd og lagafrumvörpum og gefa stjórn félagsins ábendingar og
tillögur til umsagna um þau. Kjörið var í nefndirnar á fundinum og skipa nú
kjaranefnd þeir Jón E. Ragnarsson hrl., Ragnar Aðalsteinsson hrl., Brynjólfur
Kjartansson hrl., Jón Steinar Gunnlaugsson hdl. og Gestur Jónsson hdl.
Laganefnd skipa Benedikt Blöndal hrl., Guðmundur Ingvi Sigurðsson hrl., Jón
Finnsson hrl., Páll Arnór Pálsson hdl. og Bald-
ur Guðlaugsson hdl.
Samþykkt var að hækka grunntölur í lág-
marksgjaldskrá L.M.F.i. um 29—30%. Þá var
samþykkt að hækka árgjald félagsmanna í kr.
45.000 og samþykkt hækkun málagjalda í kr.
1.800.
Á fundinum var Rannveig Þorsteinsdóttir
hrl. kjörinn heiðursfélagi L.M.F.i., en Rann-
veig er fyrst íslenskra kvenna til þess að hafa
lögmannsstörf að aðalstarfi og rak um árabil
lögmannsskrifstofu í Reykjavík.
#'**r Að kvöldi aðalfundardags var árshátíð fé-
lagsins haldin í Lækjarhvammi við Hagaorg
og var nýkjörinn heiðursfélagi heiðursgestur
samkomunnar.
réttariögmaour, heiðursféiagi Lög- Skrifstofa felagsms er sem fyrr að Óðins-
mannaféiags isiands. götu 4, undir stjórn Jónínu Bjartmars.
95